Há
![](/images/thumb/d/d8/Haha_ur_herjolfsdal.jpg/300px-Haha_ur_herjolfsdal.jpg)
Háhá, eða Há-há, er klettur sem stendur vestast á því fjalli sem kallað er Háin. „Há“ er þó réttara notað sem heildarheiti yfir allt fjallið sem stendur austan við Herjólfsdal. Há-há er, eins og nafnið bendir til, hæsti punktur fjallsins, en hann stendur um 220m yfir sjávarmál. Þar er fánastöng sem er gjarnan flaggað á við hátíðleg tækifæri, og er jafnframt spotti bundinn milli þeirrar fánastangar og annarrar eins á Blátindi yfir Þjóðhátíð, og skraut hengt þar á milli.
Háin er þverhnípt að vestan, en uppgangur er auðveldur að austan.