Blik 1936, 3. tbl./Sjómannskonan

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. september 2009 kl. 12:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. september 2009 kl. 12:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Blik 1936/Sjómannskonan“ [edit=sysop:move=sysop])
Fara í flakk Fara í leit

Blik 1936, 3. tbl.

SJÓMANNSKONAN
Ein í svölum aftanblænum
úti sjómannskonan stóð;
mann sinn á hún úti á sænum,
ötull fiskar hann á lóð;
fjögur á hún börn í bænum,
björt á svip og æskurjóð.


Ef að vindur ólmur þýtur,
eða dökknar himinninn,
svefns né værðar vart hún nýtur,
var svo og í þetta sinn.
Andvarpandi upp hún lítur:
»Æ, hve syrtir, drottinn minn!«


Öldur dans með ströndum stíga,
stormur þeytti lúður sinn.
Og í hafið hlaut ad síga
hlaðinn fiskibáturinn.
Bylgjur rísa, bylgjur hníga,
beljar næturvindurinn.


Ein í svölum aftanblænum
ekkjan föl og döpur stóð.
Fjøgur á hún børn í bænum,
bjørt á svip og æskurjóð.
Er sem hver ein alda á sænum
ymji henni sorgarljóð.
Sigurbjörn Sveinsson.