Blik 1936, 3. tbl./Sjómannskonan
(Endurbeint frá Blik 1936/Sjómannskonan)
- Sjómannskonan
- Sjómannskonan
- Ein í svölum aftanblænum
- úti sjómannskonan stóð;
- mann sinn á hún úti á sænum,
- ötull fiskar hann á lóð;
- fjögur á hún börn í bænum,
- björt á svip og æskurjóð.
- Ef að vindur ólmur þýtur,
- eða dökknar himinninn,
- svefns né værðar vart hún nýtur,
- var svo og í þetta sinn.
- Andvarpandi upp hún lítur:
- »Æ, hve syrtir, drottinn minn!«
- Öldur dans með ströndum stíga,
- stormur þeytti lúður sinn.
- Og í hafið hlaut ad síga
- hlaðinn fiskibáturinn.
- Bylgjur rísa, bylgjur hníga,
- beljar næturvindurinn.
- Ein í svölum aftanblænum
- ekkjan föl og döpur stóð.
- Fjögur á hún börn í bænum,
- björt á svip og æskurjóð.
- Er sem hver ein alda á sænum
- ymji henni sorgarljóð.