Blik 1957/Gömul skjöl

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. mars 2010 kl. 18:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. mars 2010 kl. 18:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: Efnisyfirlit 1958 =''Gömul skjöl''= <br> <br> ==''Lestrarfélag Vestmannaeyja''== <br> Lestrarfélag Vestmannaeyja var stofnað árið 1862. <br> Hér birtir Blik á...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1958



Gömul skjöl



Lestrarfélag Vestmannaeyja


Lestrarfélag Vestmannaeyja var stofnað árið 1862.
Hér birtir Blik ávarp frumkvöðlanna, þeirra Bjarna E. Magnússonar, sýslumanns, séra Brynjólfs Jónssonar og J.P.T. Bryde kaupmanns.
Þá birtist hér reglugjörð sú, sem þeir sömdu fyrir félagið, svo og listi yfir menn, sem gjörðust meðlimir félagsins þegar við stofnun þess.
Ávarpið ber með sér áhrif dönskunnar frá síðustu öld. Stafsetning og kommusetning er hin sama og á frumritunum.
Haraldur Guðnason, bókavörður, hefur gefið Bliki afrit af skjölum þessum. Færum við honum beztu þakkir fyrir.

Hverjum manni má kunnugt vera, hve mjög almenn menntan og þekking styður að því að efla heill og velferð lýða og landa, og má með sanni álítast sem grundvöllurinn undir andlegum og líkamlegum framförum hvers einstaks manns og þjóðfélagsins yfir höfuð; því upplýsingin og þekkingin hvetur menn til dáða og dugnaðar, og til þess að neyta krapta sinna, sér og öðrum til gagns og nota, því með almennri upplýsingu fylgir allajafna almenn velferð, dáð og dugur, en með vanþekkingu ódugnaður og eymdarskapur.
Af þessum ástæðum hefur oss undirskrifuðum, er fúslega viljum stuðla til þess, er miðar Vestmannaeyjum til heilla og velferðar, komið ásamt um, að til þess að efla og glæða almenna og nytsama þekkinu meðal Eyjabúa, sem vér, eins og nú er getið, álítum svo áríðandi, væri mjög nauðsynlegt að bókasafn yrði stofnsett hér í Vestmannaeyjum, innihaldandi ýmsar fróðlegar og lærdómsríkar bækur á íslenzku og dönsku máli, er frætt gæti alþýðu, og virðist oss þetta hér því æskilegra, sem enga skólamenntun er að fá hér handa börnum og unglingum, sem menn á öðrum stöðum, einkum í útlöndum geta orðið aðnjótandi, eins og það á hinn bóginn er alkunnugt, að mörgum, bæði ungum og gömlum, bæði hér og annarsstaðar á Íslandi, þykir mikil unun að bókum, en geta opt eigi sökum fátæktar eða annarra orsaka vegna, fengið þær. Undir eins og vér því, erum fullvissir um, að margir hér muni hafa vilja til þess, að afla sér þess fróðleiks, er glætt geti sanna framfaralöngun í andlegu og líkamlegu tilliti, ef þess gæfist kostur, viðurkennandi sannleika hins forna málsháttar, „að blindur er bóklaus maður“, verðum vér jafnframt að játa, að flesta skortir efni til, að afla sér nytsamra og fróðlegra bóka, og viljum því — þar félagsskapur og samtök góðra manna geta ráðið bót á þessu — skora á þá af Eyjabúum, sem einhver efni hafa, og vilja vel sér og þessum afskekkta Hólma, að ganga í lið með oss, og styrkja oss með tillögum sínum, að stofnsetja bókasafn, sem tilheyra á Vestmannaeyjum, og heita „BÓKASAFN VESTMANNAEYJA LESTRARFÉLAGS“ og miða til upplýsingar og uppfræðingar fyrir alþýðu hér á eyju. — Bráðabirgðar reglugjörð fyrir félag þetta fylgir hérmeð, til eftirsjónar fyrir þá er kynnu að vilja ganga í ofangreint Lestrarfélag.

REGLUGJÖRÐ
fyrir
Lestrarfélag Vestmannaeyja.
1.

Það er mark og mið lestrarfélags Vestmannaeyja með stofnun bókasafns, er innihaldi ýmsar fróðlegar og nytsamar bækur, einkum á íslenzku og dönsku máli, að efla almenna þekkingu á öllu því, er stutt geti að andlegum og líkamlegum framförum, og þar með fylgjandi heill og hagsæld Eyjabúa sérílagi.

2.

Hver sem verða vill meðlimur félags þessa, borgi, um leið og hann gengur í það, og svo lengi sem hann er í því, ár hvert, að minnsta kosti tvö mörk, hvort heldur er í peningum eða með einhverri þeirri bók, er forstöðunefnd félagsins álitur félaginu gagnlega, og skal hann hafa goldið tillag sitt innan maímánaðarloka hvert ár.

3.

Sá félagsmaður sem lætur eitthvað af hendi rakna við félagið, fram yfir það, sem minnst er tiltekið, skal hafa þeim mun meiri rétt til bókalána hjá félaginu.

4.

Hver sá er auðsýna kynni félaginu einhverja sérlega velgjörð, getur á aðalfundi félagsins, ef fleiri atkvæði eru með en móti, orðið kjörinn sem heiðursfélagi.

5.

Hvern þann félaga, sem ekki greiðir hið minnsta tiltekna tillag í 2 ár samfleytt, má eftir uppástungu forstöðunefndarinnar útiloka úr félaginu, nema því aðeins að hann þá borgi skuld sína, og æski framvegis að vera í félaginu.

6.

Sá sem vill segja sig úr félaginu, gjöri það ekki seinna en misseri á undan aðalfundi.

7.

Félagi þessu, sem nú stofnast, sé hið fyrsta ár veitt forstaða af sýslumanni og sóknarpresti Vestmannaeyja, og velji þeir sér til aðstoðar mann, er þeir álíta bezt til þess fallinn; — en að þessu ári liðnu og fremvegis, skulu 3 menn kosnir í forstöðunefnd af félagsmönnum, á aðalfundi félagsins, er jafnan skal haldinn einu sinni á ári, um fardaga leytið. —

8.

Meðlimir forstöðunefndarinnar skulu eftir samkomulagi sín á milli, hafa öll þau störf á hendi er viðkoma félaginu, svo sem bókhald, bókageymslu og reikninga yfir tekjur og gjöld félagsins, skal nefndin hafa 3 bækur, eina gjörðabók, aðra fyrir reikninga félagsins og hina 3ju innihaldandi bókalista og útlán bóka. —

9.

Á aðalfundi félagsins, sem getið er í niðurlagi 7. greinar, skal forstöðunefndin skýra frá aðgjörðum félagsins um hvert undanfarið ár, einnig framleggja reikning yfir fjárhag þess.

10.

Förstöðunefndin lánar út bækur til meðlima félagsins einu sinni í viku hverri (og mun hún, þegar þar að kemur, gefa félagsmönnum nákvæmari ávísun um meðferð bóka og annað þar að lútandi).

11.

Þyki þess þörf að gjörð sé breyting á reglum þessum eða við þær bætt, skal þar um rætt á almennum fundi.

Reglugjörð þessi er samantekin af stofnendum félagsins. —

Vestmannaeyjum í Júnímánuði 1862.

B.E.Magnússon ——— Br. Jónsson

J.P.T. Bryde


L I S T I

yfir þá sem gjörast vilja meðlimir lestrarfélags VESTMANNAEYJA

No. Nöfn og
aðsetur
félagsmanna
Tillag Rdl. Tillag Sk.
1. B.E. Magnússon sýslumaður
borgað í bókum
10
2. J.P.T. Bryde 20
3. Br. Jónsson
borgað í bókum
10
4. V.E. Thomsen betalt til BEM 5
5. Helgi í Kornhól 48
6. P. Bjarnesen 2
7. G. Bjarnesen betalt til BEM 1 48
8. C. Bohn borgað í bókum BEM 5
9. Magnús Pálsson á
Vilborgarstöðum
borgað BEM
48
10. Páll Jensson á
Búastöðum borgað BEM
32
11. Brynjúlfur Halldórsson borgað til Br. J. 48
12. Ingimundur Jónsson borgað Br. J. 1
13. Árni Diðriksson borgað til Br. J. 1
14. C. Roed til Br. J. bet. 2
15. Bjarni Ólafsson 48
16. Jón Jónsson í Gvendarhúsi borgað til Br. 32
17. Stefán Austmann 32
18. Jón Austmann borgað til Br. 32
20. Guðni Guðnason í Dölum 48
21. Sveinn Þórðarson borgað til Br. 48
22. Árni Einarsson hreppstjóri
til Br. J. borgað
1
23. S.J.V. Thomsen borgað til BEM 1
24. J. Salmonsen borgað til BEM 2
25. S. Torfason á Búastöðum 32
26. Chr. Magnússon Sjólyst borgað í bókum 8
27. Eyjólfur Hjaltason Löndum
borgað með bókbandi
42


Tveir samningar um byggingu templarahúss


Myndin er af Goodtemplarahúsinu á Mylnuhól, elzta samkomuhúsi hér í Eyjum, eins og það leit út eftir að Sigurður Sigurfinnsson hafði aukið við það og stækkað. — Norðan við húsið hlusta Eyjabúar á norskan söngkór, sem hingað kom á árunum 1920—1930, „Handelsstandens sangforening“ hét hann, að okkur er tjáð.


Við undirskrifaðir Sveinn Jónsson snikkari, Árni Filippusson, Eiríkur Hjálmarsson, Engilbert Engilbertsson og Sigurður Sigurfinnsson höfum gjört með okkur svolátandi samning:
1. Ég Sveinn Jónsson skuldbind mig til að smíða fundahús handa Good-Templarastúkunni Báru nr. 2 samkvæmt uppdrætti, sem við höfum fallizt á, eða með þeim breytingum, sem okkur öllum kemur ásamt um, og skal í skuldbindingu þessari fólgið, að leggja til alla þá vinnu, sem að húsagjörðinni lýtur fyrir utan járnsmíði og grjótvinnu, og að allt verkið sé vandlega af hendi leyst; að koma fyrir lömum, og læsingum og festa járnum í húsið er þar með talið.
2. Nánari ákvæði um smíðið skulu vera þessi: Húsið skal byggt á grundvelli þeim, er að nokkru leyti er þegar gjörður á svokölluðum Mylnuhól, og vera 12 álna langt og 9 álna vítt að utan máli, 4 1/2 al. á hæð undir bita. Hornstoðir skulu vera krossflettingar úr sívölu tré, tvær stoðir í hvorri hlið og tvær í austurgafli úr trjám 5x5 að gildleika. Allar aðrar stoðir, skástoðir, fótstykki og undirstokkar úr plönkum. Bitar tveir úr trjám 5x5, tveir úr trjám 5x2 1/2 og þrír úr plönkum. Sperrur fjórar úr plönkum og þrjár úr spírum. Hver sperrukjálki skal vera 4 3/4 alin á lengd, og aðeins einn planki tekinn af gildari enda hverrar spíru. Lausholt, sumpart úr plönkum, sumpart úr spírum. Að öðru leyti skal grindarviðum hagað eins og uppdráttur sýnir. — Þakið úr galvaníseruðum járnþynnum, lögðum á langbönd úr spírum og borðum. Á hvorri hlið skulu vera 3 gluggar, hver með 8 rúðum, ein rúða á hjörum í hverjum glugga, og tveir hlerar á hjörum fyrir hverjum, sem hylja þá alla. Á vesturgaflinum 3 gluggar, einn uppi yfir dyrum með þrem rúðum og einn hvoru megin dyranna, hvor með tveim rúðum.
Á austurgaflinn skal klætt með plægðum borðum, lóðréttum, en annarsstaðar skal klætt með klæðningarborðum láréttum. Klæðningin skal máluð utan eða smurð olíu jafnóðum og klætt er. Neðan á bitana skal þiljað með plægðum þiljuborðum. Með líkum borðum skal og húsið þiljað yfir um þvert tveim álnum frá vesturgafli, og skulu vera dyr á því þili einni alin frá norðurhlið hússins, í þeim fulningahurð með lömum og læsing. Gólfið í aðalhúsinu lagt plægðum borðum. Að öðru leyti verður húsið óþiljað að innan.
Fyrir útidyrum hurð úr plægðum borðum með lömum og læsing.
3. Á húsinu byrja ég Sveinn Jónsson strax á morgun, og skal halda því tafarlaust áfram unz því er lokið, nema að því leyti sem óveður eða aðrar óviðráðanlegar hindranir koma í veg fyrir það. En undir eins og smíðinni er lokið, skal húsið afhent nefndri Good-Templarastúku til fullra umráða. Sömuleiðis efniviður sá, er afgangs kann að verða.
4. Skyldi húsið farast eða skemmast af eldsvoða, meðan það er í smíðum og því er ekki skilað, lendir fjártjónið á mér, Sveini Jónssyni, ef það er vangæzlu minni að kenna eða þeirra, sem ég hefi í verki með mér.
5. Við Árni Filippusson, Eiríkur Hjálmarsson, Engilbert Engilbertsson og Sigurður Sigurfinnsson skuldbindum okkur til vegna stúkunnar Báru nr. 2 að annast um að grjótvinnu þeirri, viðarflutningum og járnsmíði, er hússmíðinni er samfara verði svo tímanlega lokið og haganlega, að það hindri ekki hr. Svein Jónsson frá að halda áfram verki sínu, og að honum verði endurgoldin smíðin með 70 — krónum í innskrift við Garðsverzlun, þegar henni er lokið samkvæmt þessum samningi.
6. Verði ágreiningur um skilning á ákvæðum þessa samnings eða um það, hvort vinnan sé leyst af hendi samkvæmt honum, skulu tveir óvilhallir menn, er málspartar kjósa sinn hvor, skera úr þeim ágreiningi.

Vestmannaeyjum, 13. október 1890.
Sveinn Jónsson
Árni Filippusson —— Eiríkur Hjálmarsson
Engilbert Engilbertsson
Sigurður Sigurfinnsson

Við undirskrifaðir Sigurður Sigurfinnsson, Árni Filippusson, Engilbert Engilbertsson, Gísli Lárusson og Sveinn Jónsson höfum gert með okkur svo látandi samning:
1. Ég Sigurður Sigurfinnsson skuldbind mig til að lengja fundahús Goodtemplarstúkunnar Báru nr. 2 um 4 álnir og til að klæða svo með járnþynnum allan austurgafl hússins og alla suðurhlið þess að gluggum undanskildum, og skal í skuldbindingu þessari fólgið að leggja til alla þá vinnu, sem að húsbót þessari lýtur, að undanskildri grjótvinnu og járnsmíði, og að allt verkið sé vandlega af hendi leyst.
2. Nánari ákvæði um smíðina skulu vera þessi: Viðaukinn við húsið skal vera með sömu vídd og hæð og með jöfnu risi og það áður byggða af húsinu, með einum glugga á hliðinni hvoru megin og hlerar á lömum fyrir þeim báðum. Bitar, stoðir, lausholt, fótstykki og undirstokkar skulu vera úr trjám og plönkum, austurgaflinn klæddur með þeim sömu borðum, sem nú eru á honum, norðurhliðin með borðum, sem tekin skulu af suðurhliðinni, en í stað þeirra á suðurhliðinni skulu aftur látin plægð gólfborð, og eins á hinn nýja part hússins þeim megin. Á norðurhliðinni skal hinn nýi gluggi vera með sömu stærð og lagi og þeir gluggar, sem þar eru fyrir, en sunnanmegin skulu þeir gluggar, sem þar eru, teknir upp og færðir með sólbekkjum og hlerum svo miklu utar, sem þarf vegna járnklæðningarinnar, og sett ný vatnsborð nægilega breið fyrir ofan og neðan hvern þeirra. Með sama lagi skal og nýi glugginn á þeirri hlið vera. Allt, sem rjúfa þarf af því áður gjörða, skal rofið með varúð og gætni, svo það skemmist sem minnst.
Norðurhliðin skal máluð að utan strax og búið er að klæða hana. Gólfið skal vera úr plægðum gólfborðum og loftið úr plægðum þiljuborðum. Frá ákvæðum þessum má því aðeins víkja, að mér Sigurði Sigurfinnssyni og að minnsta kosti tveim öðrum með undirskrifuðum komi ásamt um það.
3. Á smíðinni byrja ég Sigurður Sigurfinnsson strax í dag, og skal halda henni tafarlaust áfram, unz henni er lokið, nema að því leyti sem óveður eða aðrar óviðráðanlegar hindranir koma í veg fyrir það. Einkum skal þó kosta kapps um, að húsið sé sem skemmstan tíma opið fyrir veðrum. En undir eins og smíðinni er lokið, skal húsið og efniviður sá, sem afgangs kann að verða, afhentur áðurnefndri stúku.
4. Við Árni Filippusson, Engilbert Engilbertsson, Gísli Lárusson og Sveinn Jónsson skuldbindum okkur til vegna stúkunnar Báru nr. 2 að annast um, að grjótvinnu þeirri og járnsmíði, sem byggingu þessari er samfara, verði svo tímanlega og haganlega lokið, að það hindri ekki hr. Sigurð Sigurfinnsson frá að halda áfram verki sínu og honum verði endurgoldin smíðin með 30 — þrjátíu — krónum í innskrift við Garðsverzlun, þegar henni er lokið samkvæmt þessum samningi.
5. Verði ágreiningur um skilning á ákvæðum þessa samnings, eða um það, hvort vinnan sé leyst af hendi samkvæmt honum, skulu tveir óvilhallir menn, er málspartar kjósa sinn hvor, skera úr þeim ágreiningi.

Vestmannaeyjum 18. ágúst 1891
Sigurður Sigurfinnsson
Árni Filippusson —— Sveinn Jónsson
Engilbert Engilbertsson —— Gísli Lárusson


Hafnarmerki þau, sem nú

brúkast í Vestmannaeyjum


Þegar siglt er að höfninni, skal gæta þess að vera sem svarar mitt á milli Klettsnefs, sem er norðausturtangi innsiglingarinnar, og svo kallaðra Urða, sem eru suðaustan megin.
Ef austan vindur er, skal sigla svo langt norður eftir Víkinni, að suðurendi Elliðaeyjar sé jafn Klettsnefi, sem þá er orðið aftur af, og skal stýra undan því og sjást aðeins til Elliðaeyjar, þar til þær stangir, sem standa sunnan megin innsiglingarinnar, bera hvor í aðra, sem eru flaggstöng og smástöng með nokkru millibili, og skal þá beygja suður á (til bakborðs), og stýra á norðurenda kletts þess, sem stendur sunnan megin hafnarinnar og kallast Nausthamar, og skal svo beygja til stjórnborðs, þegar austurendi Helgafells er kominn vestur undan hæðinni, sem stangirnar standa á (flaggstöngin og litla stöngin) og skal þá stýra mitt á höfnina eftir því sem maður sér, að skip liggja, ef þau eru inni. Séu skip fyrir, þá ber að gæta þess, að vera ætíð norðan megin við þau.
Ef flagg er dregið upp á fyrrnefndri flaggstöng og það er látið standa, þá má það skip, sem höfn vill taka, sigla inn, og sé sá vindur og sjór, að hafnsögumaður ekki komist út, og skipið hefir flaggað lóðsflaggi, þá liggur hafnsögumaðurinn fyrir innan svokallað Steinsrif og vísar þaðan rétta leið með flaggi, sem hann hefur á stöng í bátnum. Skal þá gæta þess að stýra eftir því, sem hann vísar til, nefnilega bendir með flagginu: til stjórnborðs, til bakborðs.
Tvö flögg í fyrrnefndri flaggstöng merkja, að norðan megin við Eiðið geta skip legið og tekið hafnsögumann, ef þau vilja.
Tvö ljós á nóttu í flaggstönginni merkja sama og tvö flögg; eitt ljós á nóttu í flaggstönginni, merkir sama og eitt flagg. En þegar flagg er dregið upp og niður eftir, eftir þann tíma, sem maður ímyndar sér, að flaggið hafi sézt frá skipinu, þá merkir það: ,,0f lágt vatn“ (fjara), og má því ekki halda inn til hafnarinnar, fyrr en flaggið er dregið upp aftur.
Eftir framangreindum merkjum hefir verið farið að minnsta kosti síðustu tuttugu árin, og engin breyting á þeim orðið, að undanskildu því, að smástöngin, sem áður er nefnd, var sett upp fyrir nokkrum árum.
Akkerismerki eru einnig föstákveðin, og er í því tilliti mikið komið undir kringumstæðum, enda mun engu ókunnu skipi fært að leita á hina eiginlegu höfn án hafnsögumanns.

Vestmannaeyjum, 15. okt. 1899.
Hannes Jónsson, hafnsögumaður.


Listi

yfir fuglaveiði í Vestmannaeyjum
árið 1863 og gjald það,
sem þar af greiddist, 4 af 100.

Bæjar
nöfn
Manna
nöfn
Fýll Lundi
Nöjsomhed B.E.M. sýslum. 500 4300
Garðurinn Fact. P. Bjarnas. 350 10000
Kornhóll Lárus Jónsson 150 2800
Miðhús S. Helgadóttir 150 3800
Miðhús H. Jónsson 100 1500
Gjábakki S. Sæmundsd. 140 1400
Gjábakki I. Jónsson 100 5000
Gjábakki E. Hansson 200 2400
Vilborgarst. G. Ólafsson 300
V.b.st. M. Pálsson 300 1000
V.b.st. G. Daníelsd. 800 7000
V.b.st. S. Sigurðsson 600 4000
V.b.st. P. Halldórsson 300 500
V.b.st. M. Magnússon 300 1500
V.b.st. Á. Einarsson 500 3000
V.b.st. Jón Jónsson 300
Kirkjubær O. Guðmundss. 400
K.bær Sv. Sveinsson 230
K.bær Magnússon 230 400
K.bær M. Oddsson 450
K.bær I. Guðmundsd. 200
Móhús E. Nikulásdóttir 200 300
Tún Mad. I. Möller 700 3000
Presthús B. Einarsson 430 2000
Pr.hús J. Jónsson 200 1000
Oddstaðir J. Þorgeirsson 200 400
Oddsst. J. Bjarnason 200 1400
Búastaðir P. Jensson 200 7000
Búast. S. Torfason 500 2000
Ólafshús J. Jónsson 400 1700
Nýibær Þ. Jónsson 600 6000
Vesturhús E. Erasmusson 150 1500
Vesturhús Sv. Hjaltason 150 1600
Stóragerði Helgi Jónsson 400 3200
Dalir G. Guðnason 250 3200
Dalir B. Bjarnason 400 1600
Norðurgarður T. Oddsson 100 900
Norðurg. Ísak Jónsson 100 500
Norðurg. Br. Halldórsson 200 3000
Ofanleiti pr. Br. Jónsson 2415 7910
Svaðkot Bj. Ólafsson 500 5200
Gvendarhús Þ. Erasmusd. 500 3200
Brekkhús A. Guðmundss. 500 3000
Draumbær St. Austmann 500 400
Þorlaugarg. J. Árnason 200 800
Þorl.g. J. Austmann 100 400
Þorl.g. D. Magnússon 100 1000
Stakkagerði Á. Diðriksson 600 10500
Sta.gerði B. Magnússon 100 1000
Steinstaðir F. Árnason 100 1800
St.staðir _ I. Ólafsson 100 1400
Kastali J. Magnússon 150 1000
Landlyst M. Markússon 450
Sjólyst Kr. Magnússon 400 4900
Frydendal C.W. Roed 300 3200
Ottahús J. Salomonsen 700 1300
Lönd Sv. Þórðarson 450 5600
Tómthúsmenn:
Fögruvellir G. Guðbrandss.
Fögruv. Ól. Jónsson 2400
Litlibær E. Jónsson 1600
Steinmóðshús E. Guðmundsson
Steinm.hús J. Steinmóðss. 2000
Ömpuhjallur G. Árnason 300 500
Helgahjallur E. Eiríksson 100 3000
Helgabær Halldór Jónsson
Steinshús J. Samúelsson 1600
Smiðjan G. Pétursson 3400
Grímshjallur J. Þorkelsson 100 4000
Grímshj. H. Gíslason 100 3300
Alls 20995 166310
París Úlfh. Jónsdóttir
Litlakot O. Einarsson 100 2500
Hólshús V. Jónsson
Jónshús G. Guðmundss. 1000
Gata B. Sigurðsson 1200
Kokkhús S. Guðmundsson
Brandshús S. Ólafsdóttir
Elínarhús G. Eyjólfsdóttir 250 6100
Vanangur I. Sigurðsson 200 3000
Fagurlist J. Ásgrímsson 250 400
Lönd E. Hjaltason 100
Lönd F. Jónsson 100 4500
Húsmenn:
Kornhóll Helgi Jónsson 2400
Garður Þ. Kortsdóttir 1600
Ennfremur:
Júlíushaab G. Bjarnasen 200 4600
Alls 21945 19060
Skattur Rd Sk.
Skattur samtals 103 4
Eftirgefið samtals 18 47
Skattur greiddur 84 5
Vestmannaeyjum 20. marz 1864
Á. Einarsson Á. Diðriksson


Tilskipan um torfskurð


Jarðabændur, — og aðrir mega alls eigi torf skera, — aðvarast um það, að láta skorið torf eigi liggja lengur við flagið en sólarhring, að skera eigi meira torf, en brýna nauðsyn ber til, að skera eigi lengra torf en álnarlangt, og að hafa hæfilegt bil milli torfristnanna.

Skrifstofu Vestmannaeyjasýslu 3. okt. 1893.
Jón Magnússon.


Tafla yfir tíund

í Vestmannaeyjahreppi,

haustið 1862:


Bæj
ar-
nöfn

end
ur
Heim
ilis
fólk
Kýr Kvíg
ur
Ær
með
lömb
um
Tvæ-
vetl
ur
og
eld
ri
Eins
árs
Hest
ar
Hryss
ur
10-
ær
ing
ar
8-
æri
ng
ar
6-
ær
ing
ar
4-
ær
ing
ar
2
mann
a
för
Tal
a
laus
a-
fjár-
hundr
aða
1. Noisomhed B.E.
Magnús
son,
sýslu
maður
7 1 6 2 1 1/8 1/6 3 1/2
2. Garðurinn Fact
or
Bohn
1 7 3 3/4 2
3. Garðurinn P. Bjarnasen 11 1 30 20 10 1 1/5 3/4 1/3 1/2 11
4. Kornhóll H.
Jóns
son
4 1/2 3 1 5 1 1/8 2 1/2
5. Miðhús Sigurð
ur
Jóns
son
4 1/2 4 4 1/2 2
6. Miðhús Helgi
Jóns
son
5 1/2 5 4 2 2
7. Gjábakki Sig
ríð
ur
Sæmunds
dóttir
5 1/2 10 6 8 1/4 1/2 4 1/2
8. Gjábakki Ingi
mundur
Jóns
son
6 1 6 2 1/8 1 3 1/3
9. Gjábakki E.
Hans
son
7 1 4 3 1 1/2 1 4
10. Vilborgar
staðir
Guð
mundur
Ólafs
son
4 1/2 1/2 1
11. Vilborgar
staðir
Magnús
Páls
son
5 1/2 2 3/4
12. Vilborgar
staðir
Jón
Jóns
son
5 1/3 2 2/3
13. Vilborgar
staðir
Guð
björg
Daníels
dóttir
6 2 1/2 1 2/3
14. Vilborgar
staðir
Sig
hvatur
Sigurðs
son
9 1 4 3 1 1 3 3/4
15. Vilborgar
staðir
M.
Magnús
son
5 1/2 1 1/2 1
16. Vilborgar
staðir
P.

Hall
dórs
son
4 1/2 1/2
17. Vilborgar
staðir
Árni
Einars
son
13 1 11 6 1 1/4 1/3 1 6
18. Háigarður M.
Sig
urðs
son
6 1/3 2 1/2 1 2
19. Háigarður V.
Sig
urðar
dóttir
3 1/3 3 1/2 1
20. Kirkjubær O.
Guð
munds
son
1 1 1
21. Kirkjubær Sv.
Sveins
son
2 1/2 4 5 1/2 2
22. Kirkjubær V.
Magnús
son
5 1/2 2 1/2 1
23. Kirkjubær Ingvar
Guð
munds
son
4
24. Kirkjubær M.
Odds
son
4 1/2 8 3 1 1/4 1/2 1/2 4 11/24
25. Tún Mad. I.
Möller
9 1 15 4 1 1 5 1/2
26. Móhús Evlalía
Nikulás
dóttir
1 1/2 1/2
27. Oddsstaðir J.
Þor
geirs
son
7 1 2 1 1 1 1/2 2 1/2
28. Oddsstaðir J.
Bjarna
son
7 2 4 2 1/2 1 1/2
29. Presthús J.
Jóns
son
3 1 2 2 1

1 2/3

30. Presthús Björn
Einars
son
8 1 10 4 1/8 3
31. Búastaðir P.
Jens
son
8 1 6 4 1/5 2 1/2
32. Búastaðir S.
Torfa
son
8 1 5 3 4 1/8 1/2 3
33. Ólafshús J.
Jóns
son
7 1 8 6 1/2 3
34. Nýibær Þor
steinn
Jóns
son
6 2 12 8 1 1/4 1/3 1/2 6 1/2
35. Vesturhús E.
Er
asmus
son
5 1 10 4 6 1/2 1/10 4
36. Vesturhús Sv.
Hjalta
son
4 1 8 4 6 1 1/8 1/2 4 1/2
37. Stóragerði H.
Jóns
son
6 1 6 5 6 1 1/2 4
38. Stóragerði Kr.
Magnús
son
8 1 18 12 1 1 1 1/4 1/2 8 1/2
39. Dalir G.
Guðna
son
4 1 7 2 3 1/2 3
40. Dalir Bj.
Bjarna
son
6 1 3 1 2
41. Norðurgarður Týli
Odds
son
3 1/2 4 2 1 1 1/2
42. Norðurgarður Ísak
Jóns
son
5 1/2 3 1 1 1 5/6
43. Norðurgarður Brynj.
Hall
dórs
son
9 1 8 4 6 1 3/8 1/2 1 6
44. Ofanleiti Pr. Br.
Jóns
son
12 2 12 4 4 2 2 2/3 9
45. Svaðkot Bj.
Ólafs
son
4 2 1 1/3 1/2 2
46. Gvöndarhús Þ.
Erasmus
son
3 1/2 1 6 2 7 1 1/4 1/3 4
47. Draumbær St.
Aust
mann
6 1 5/6 1 5/6
48. Brekkuhús A.
Guð
munds
son
5 1 6 3 5 1 1/2 4
49. Steinsstað
ir
Finnur
Árna
son
3 1/2 1/2 1
50. Steinsstað
ir
Ingvar
Ólafs
son
6 1/2 1/2 1
51. Þorlaugar
gerði
J.
Aust
mann
5 1 1/2
52. Þorlaugar
gerði
D.
Magnús
son
5 1 1/2
53. Þorlaugar
gerði
Jón
Árna
son
8 1 2 1 1/2 2
54. Stakkagerði Á.
Dið
riks
son
9 6 1 4 1/5 1/2 2
55. Stakkagerði B.
Magnús
son
2 1 2 1 1 2
Tómthúsmenn,
sem eitthvað
fram
telja til
tíundar:
1. Ömpuhjallur G.
Árna
son
8 7 4 1/3 1/2 2
2. Helgahjallur E.
Eiríks
son
4 5 2 5 1/3 1/2 2
3. Frydendal C.V.
Roed
7 1 15 6 3/8 1/2 5
4. Litlakot O. Einars
son
3 3 1/2 1
5. Brandshús Hr.
Jónsson
6 3 1/2
6. Elínarhús G
Eyjólfs
dóttir
7 5 2 4 1/4 1/2 2
7. Ottahús J.
Salo
monsen
7 1/2 15 9 3 1/4 1/2 5
8. Vanangur Ingi
mundur
Sigurðs
son
3 7 4 1 1/2
9. Fagurlist Jón
Ásgríms
son
5 4 2 1/5 1
10. Lönd Sv.
Þórðar
son
7 1/2 5 2 2 1/10 1/2 2
Húsmenn:
1. Hóllinn Árni
Eiríks
son
2 7 5 1 2 1/2
2. Austur-Gerði Sigurður
Jóns
son
6 1/2 1/2
Öðrum þjónandi:
1. Gvendarhús Jón
Jóns
son
1/3 1/2 3/4
2. Ofanleiti Ingi
björg
Guðmunds
dóttir
5 2 1
Ennfremur:
Juliushaab Factor G.
Bjarna
sen
3 8 2 6 1/2 2 1/2
Vestmannaeyjum í jan. 1863
Á. Diðriksson Á. Einarsson


Niðurstöðutölur skýrslunnar:

Tala heimilisfólks þeirra, er tíund greiddu samtals 372 manns. (Alls bjuggu hér þá um 500 manns).

Kýr alls 36
Kvígur 4
Ær með lömbum 370
Tvævetlur og eldri 106
Eins árs kindur 178
Hestar 12
Hryssur 23
8-æringar 6 eða 7
10-æringar 1
6-æringar 2
4-æringar 7
2ja manna för 16
2ja manna för
voru einnig

4-æringar
en minni en
hinir fyrr nefndu.