Blik 1969/Minningarnar
- Minningarnar
- ( Sonnetta )
- Minningarnar
- Ég bind í huga bjartar, liðnar tíðir,
- er bárugjálfur lék við fjörusandinn,
- og jörðin hvít, en aðeins svalur andinn,
- sem andlit strauk, að glaðir voru lýðir.
- Ég bind í huga bjartar, liðnar tíðir,
- Og barnahópar bæjunum af, fríðir,
- sér brugðu’ á leik í snjónum, það var gaman,
- og léku sér hin ljúfu kvöld þar saman,
- er lífið hló, — en haldið heim um síðir.
- Og barnahópar bæjunum af, fríðir,
- Stjörnuljósin blikuðu í blænum,
- og bjartur máni skein í sínu veldi,
- og töfrum sló á fjall og fjörusteina.
- Stjörnuljósin blikuðu í blænum,
- Ljómi þeirra lyfti litla bænum,¹
- sem lá þar hljóður vafinn vetrarfeldi,
- svo langt, að mátti hann af hafi greina.
- Ljómi þeirra lyfti litla bænum,¹
¹ Þ. e.: þorp.