Kirkjuhvoll
Húsið Kirkjuhvoll við Kirkjuveg 65 var byggt árið 1911 en endurbætt 2002. Í húsinu hefur verið starfrækt ferðaskrifstofa en aðallega hefur húsið verið notað sem íbúðarhús. Árið 2006 bjuggu í húsinu Soffía Birna Hjálmarsdóttir og Þorvaldur Ásgeirsson.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Halldór Gunnlaugsson héraðslæknir , Anna Gunnlaugsson kona hans og fjölskylda
- Trausti Eyjólfsson og fjölskylda
- Sigurður Rúnar Jónsson -1980
- Gísli Þorsteinsson og Lovísa Jónsdóttir 1980-1985
- Ferðaskrifstofa Vestmannaeyja 1985
- Garðar Agnar Garðarson og Bára Sigurjónsdóttir
- Hólmfríður Sigurpálsdóttir og Ingi Erlingsson
- Soffía Birna Hjálmarsdóttir og Þorvaldur Ásgeirsson
Heimildir
- Kirkjuvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.