Ásdís Guðmundsdóttir (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. janúar 2026 kl. 16:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. janúar 2026 kl. 16:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja í Héðinshöfða fæddist 10. ágúst 1913 á Sólheimum í Hrunamannahreppi og lést 9. október 1995.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Brynjólfsson bóndi, f. 10. janúar 1865, d. 8. maí 1952, og kona hans Guðrún Gestsdóttir húsfreyja, f. 15. október 1873, d. 5. desember 1918.

Ásdís var með foreldrum sínum meðan beggja naut við, en móðir hennar lést 1918. Hún var með fjölskyldunni á Sólheimum 1920, en var vetrarstúlka í Reykjavík 1930.
Ásdís var vinnukona á Stekkum og þar var Gísli vinnumaður. Hún eignaðist Unni í Reykjavík 1934 og fluttist fljótlega með hana til Eyja.
Þau Ásdís voru á Stóru-Heiði 1935 og enn 1939, í Birtingarholti 1940.
Þau bjuggu í Héðinshöfða 1941 og síðan.
Gísli lést þar 1972. Ásdís fluttist í Hafnarfjörð við Gos, en sneri til Eyja ári síðar. Hún lést í Héðinshöfða 1995.


Maður Ásdísar, (1972), var Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902, d. 24. desember 1972.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.