Grétar Þór Eyþórsson
Grétar Þór Eyþórsson íþróttafræðingur, fyrrum yfirmaður Íþróttamiðstöðvarinnar í Eyjum, kennari, sjómaður, matsveinn, fæddist 23. júní 1986.
Foreldrar hans Laufey Grétarsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1962, og Eyþór Harðarson rafmagnstæknifræðingur, f. 11. júní 1963.
Börn Laufeyjar og Eyþórs:
1. Aníta Ýr Eyþórsdóttir, íþróttafræðingur, deildarstjóri, f. 18. mars 1984. Maður hennar Magnús Ólafur Björnsson.
2. Grétar Þór Eyþórsson, íþróttafræðingur, fyrrum yfirmaður Íþróttamiðstöðvarinnar í Eyjum, kennari, sjómaður, matsveinn, f. 23. júní 1986. Kona hans Anna Ester Óttarsdóttir.
Þau Anna Ester giftu sig, hafa eignast þrjú börn. Þau búa við Búhamar 48.
I. Kona Grétars Þórs er Anna Ester Óttarsdóttir úr Eyjum, bókavörður, f. 23. febrúar 1989. Foreldrar hennar Nanna Dröfn Sigurfinnsdóttir, f. 28. desember 1966, og Óttar Gunnlaugsson, f. 20. mars 1965.
Börn þeirra:
1. Óttar Grétarsson, f. 6. maí 2014.
2. Emil Þór Grétarsson, f. 12. október 2017.
3. Laufey Grétarsdóttir, f. 1. júní 2023.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Grétar Þór.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.