Óttar Gunnlaugsson
Fara í flakk
Fara í leit
Óttar Gunnlaugsson, skipverji á Herjólfi fæddist 20. mars 1965.
Foreldrar hans Gunnlaugur Þorfinnur Jónsson, rafvirki, f. 22. október 1922, d. 15. október 2003, og Þuríður Andrésdóttir, f. 8. mars 1924, d. 6. ágúst 2002.
Óttar flutti til Eyja 1985.
Þau Nanna giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Búhamar 31.
I. Kona Óttars er Nanna Dröfn Sigurfinnsdóttir, húsfreyja, leiðbeinandi í leikskóla, f. 28. desember 1966.
Börn þeirra:
1. Anna Ester Óttarsdóttir, f. 23. febrúar 1989.
2. Þorbjörg Lind Óttarsdóttir, f. 20. mars 1997.
3. Þuríður Andrea Óttarsdóttir, f. 23. mars 2009.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Nanna og Óttar.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.