Forsíða

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. janúar 2025 kl. 18:21 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. janúar 2025 kl. 18:21 eftir Frosti (spjall | framlög) (tengill á 1973 Allir í bátana)
Fara í flakk Fara í leit
1973 Allir í bátana á Heimaslóð


Einstakt björgunarafrek á heimsvísu var þegar íbúar Vestmannaeyja voru fluttir á brott frá Heimaey 23.janúar 1973 Nú hafa verið skráðar upplýsingar með hvaða hætti íbúar flúðu Eyjuna eða alls, 5.049 manns, 2.630 karlar og 2.369 konur auk 50 ófæddra barna sem voru í móðurkviði þann 23.janúar 1973.

Fólkið fór frá Eyjum með 58 bátum og skipum, flugi eða varð lengur í Eyjum þessa nótt. Að auki komu a.m.k. þrír bátar til Eyja um morguninn til að sækja fólk en fóru farþegalausir til baka. Skráð hefur verið hvar sérhver farþegi var búsettur á þeim tíma og með hvaða báti hann fór og hverjir voru í áhöfn þess báts auk þess hverjir fóru með flugi.

Ingibergur Óskarsson hefur unnið þrekvirki við að safna upplýsingum um flóttann mikla frá Heimaey 23. janúar 1973 og eru upplýsingarnar nú aðgengilegar á 1973 Allir í bátana á Heimaslóð.


Mynd vikunnar

Grein vikunnar

Úr Blik:Sigfús Jörundur Johnsen greinarhöfundur.

Fyrsti gúmmíbjörgunarbáturinn

Áhrifamikið brautryðjandastarf

Það fer varla fram hjá nokkrum, sem les Blik að staðaldri, hve mikill fróðleikur hefur náð að varðveitast frá gleymsku á síðum ritsins um áraskeið. Þar hefur sjávarútvegur Eyjamanna ekki farið varhluta. Ég afréð þess vegna, þegar ég rakst á gamalt viðtal, er ég hafði átt árið 1954, að birta það í Bliki. Það viðtal varðar merkan þátt úr björgunarsögu byggðarlagsins okkar og svo landsins í heild.
Viðtal þetta átti ég við hinn trausta útgerðarmann, Kjartan Ólafsson frá Hrauni í Vestmannaeyjakaupstað. Lesa meira

Heimaslóð hefur nú 40.114 myndir og 19.564 greinar.

Vinsamlegast sendið allar ábendingar og fyrirspurnir á netfangið heimaslod@vestmannaeyjar.is