Björgúlfur Stefánsson
Björgúlfur Stefánsson, starfsmaður Reykjavíkurborgar fæddist 3. ágúst 1963.
Foreldrar hans Stefán Pétursson, sjómaður, vélstjóri, f. 30. september 1943, d. 23. júlí 2016, og kona hans Friðrikka Svavarsdóttir, húsfreyja, starfsmaður á leikskóla og á öldrunarheimili, fiskverkakona, f. 13. maí 1945, d. 5. október 2020.
Börn Friðrikku með Stefáni fyrri manni sínum:
1. Björgúlfur Stefánsson starfsmaður Reykjavíkurborgar, f. 3. ágúst 1963, ókvæntur.
2. Hlynur Stefánsson verkamaður í Fiskimjölsverksmiðjunni (Gúanó), f. 8. október 1964. Kona hans Unnur Björg Sigmarsdóttir.
Barn Friðrikku og Hrafns síðari manns hennar:
3. Lind Hrafnsdóttir húsfreyja, eigandi Leturstofunnar, útgefandi Tígull.is, f. 5. apríl 1982. Maður hennar Jón Örvar van der Linden.
Björgúlfur er ókvæntur og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Lind.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.