Þórður H. Hallgrímsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. desember 2021 kl. 17:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. desember 2021 kl. 17:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Þórður H. Hallgrímsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Þórður Halldór Hallgrímsson netagerðarmeistari fæddist 13. september 1952 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Hallgrímur Þórðarson netagerðarmeistari, f. 7. febrúar 1926, d. 8. október 2013, og kona hans Guðbjörg Einarsdóttir húsfreyja, f. 30. september 1931, d. 18. desember 2008.

Þórður var með foreldrum sínum í æsku, á Urðavegi 42 og Heiðarvegi 56.
Hann vann við netagerð hjá föður sínum meira og minna frá 13 ára aldri, lærði netagerð þar, varð sveinn um tvítugt og síðan meistari.
Þórður vinnur við netagerð hjá Vinnslustöðinni.
Þau Anna giftu sig 1978, eignuðust 4 börn, en misstu eitt þeirra nær tveggja ára. Þau búa á Áshamri 2.

I. Kona Þórðar, (25. desember 1978), er Anna Friðþjófsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 24. mars 1927.
Börn þeirra:
1. Guðbjörg Þórðardóttir húsfreyja, lífeindafræðingur, f. 10. nóvember 1976. Maður hennar Gunnar Guðjónsson.
2. Berglind Þórðardóttir kennari, f. 14. nóvember 1984. Maður hennar Sigurjón Örn Lárusson.
3. Halldóra Björg Þórðardóttir, f. 16. nóvember 1986, d. 31. október 1988.
4. Hallgrímur Þórðarson sjávarútvegsfræðingur, vinnur hjá Vinnslustöðinni, f. 28. apríl 1997, ókvæntur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.