Rafn Sigurbergsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. september 2024 kl. 11:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. september 2024 kl. 11:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Rafn Sigurbergsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Rafn Guðberg Sigurbergsson, verkamaður, vélstjóri fæddist 24. nóvember 1933 í Brautarholti við Landagötu 3B.
Foreldrar hans Sigurberg Benediktsson, verkamaður, f. 7. apríl 1898, d. 28. janúar 1965, og sambúðarkona hans Þórunn Jónína Elíasdóttir, húsfreyja, f. 12. janúar 1897, d. 20. mars 1987.

Þau Edda giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Bárustíg 4 í Eyjum um 1958-1960.
Edda lést 2017. Rafn býr í Rvk.

I. Kona Rafns var Edda Ísaks, (hét áður Edda Sólveig Jónasdóttir), frá Siglufirði, húsfreyja, fiskverkakona, starfaði síðar við umönnun, f. 28. apríl 1934, d. 8. maí 2017. Foreldrar hennar Jónas Sveinn Jónsson, f. 19. desember 1909, d. 4. maí 1971, og Einrún Ísaksdóttir, f. 26. nóvember 1905, d. 7. mars 1981.<r> Börn þeirra:
1. Rún Rafnsdóttir, f. 29. nóvember 1957 í Rvk.
2. Páll Rafnsson, f. 29. janúar 1959 í Eyjum.
3. Grétar Rafnsson, f. 7. júlí 1961 í Rvk, d. 11. janúar 2021.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.