Einar Hreiðarsson (Kirkjubæ)
Einar Hreiðarsson frá Svínhaga á Rangárvöllum, bóndi á Kirkjubæ fæddist 1677, var á lífi 1735.
Foreldrar hans Hreiðar Ólafsson, bóndi og kona hans Þorgerður Helgadóttir.
Einar var vinnumaður á Gjábakka 1703. Hann átti níu dætur, segir Espólín.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.