Gústaf Finnbogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júlí 2020 kl. 10:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júlí 2020 kl. 10:49 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Gústaf Finnbogason verkamaður, bifreiðastjóri fæddist á Hóli í Eskifirði 28. febrúar 1922. Hann lést í Reykjavík 13. apríl 2011. Foreldrar hans voru Finnbogi Erlendsson og María Ólafía Þorleifsdóttir. Gústaf bjó að Njarðarstíg 5, Stíghúsi í Vestmannaeyjum fram að gosi 1973, en byggði sér síðar hús í Kópavogi að Skjólbraut 11a og bjó þar síðan.
Börn hans og konu hans Helgu Júlíusdóttur voru Finnbogi Már Gústafsson (ættleiddur), sonur Gústafs og Svövu Gísladóttur frá Dæli í Haganeshreppi, fæddur 22. ágúst 1952 og Olena María Gústafsdóttir (ættleidd), f. 21. júní 1961, dóttir Gústafs og Geirlaugar Jónsdóttur.
Gústaf var lengst af frístundabóndi með kindur, fyrst í Vestmannaeyjum, en síðast í Kópavogi og í Fjárborg.

Gústaf var formaður Taflfélags Vestmannaeyja í fjögur ár frá 1958 til 1962. Eftir andlát Gústafs færðu ættingjar hans Taflfélaginu í Vestmannaeyjum skákminnisblöð hans og skákbækur að gjöf.


Heimildir