Gústaf Finnbogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gústaf Finnbogason verkamaður, bifreiðastjóri fæddist á Hóli í Eskifirði 28. febrúar 1922. Hann lést í Reykjavík 13. apríl 2011. Foreldrar hans voru Finnbogi Erlendsson og María Ólafía Þorleifsdóttir. Gústaf bjó að Njarðarstíg 5, Stíghúsi í Vestmannaeyjum fram að gosi 1973, en byggði sér síðar hús í Kópavogi að Skjólbraut 11a og bjó þar síðan.
Börn hans og konu hans Helgu Júlíusdóttur voru Finnbogi Már Gústafsson (ættleiddur), sonur Gústafs og Svövu Gísladóttur frá Dæli í Haganeshreppi, fæddur 22. ágúst 1952 og Olena María Gústafsdóttir (ættleidd), f. 21. júní 1961, dóttir Gústafs og Geirlaugar Jónsdóttur.
Í Eyjum stundaði Gústaf sjómennsku en var síðar vörubifreiðastjóri. Gústaf var lengi frístundabóndi með kindur, fyrst á Eskifirði, en síðar í Kópavogi og í Fjárborg.

Gústaf var formaður Taflfélags Vestmannaeyja í fjögur ár frá 1958 til 1962.

Eftir andlát Gústafs, færði dóttir hans, Lena María Gústafsdóttir Taflfélaginu í Vestmannaeyjum ýmsa muni úr fórum Gústafs að gjöf. Föstudaginn 7. september 2012 tók Nökkvi Sverrisson fh. TV við gjöfinni úr hendi Lenu. Þar voru ýmsir munir, svo sem útskorið merki félagsins, fundargerðarbækur frá sjötta áratugnum, mótsskrár, skákminnisblöð Gústafs og skákbækur.


Heimildir