Gunnlaugur Erlendsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2024 kl. 11:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2024 kl. 11:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Gunnlaugur Erlendsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Gunnlaugur Erlendsson, kafari í Eyjum fæddist 30. janúar 1974.
Foreldrar hans Elísabet Arnoddsdóttir, húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 18. ágúst 1942, og maður hennar Erlendur G. Pétursson, húsasmíðameistari, f. 4. maí 1943.

Börn Elísabetar og Erlendar:
1. Arnoddur Erlendsson djúpsjávarkafari, býr í Mosfellsbæ, f. 16. febrúar 1967. Kona hans Sigurbjörg Ingólfsdóttir.
2. Pétur Freyr Erlendsson tónlistarmaður, húsasmiður, húsgagnasmiður í Hafnarfirði, f. 9. október 1970. Kona hans Ragnhildur Ósk Magnúsdóttir.
3. Anna Stefanía Erlendsdóttir kennari, guðfræðingur. Hún býr á Selfossi, er kennari við barnaskólann á Stokkseyri og Eyrarbakka, f. 30. janúar 1974.
4. Gunnlaugur Erlendsson kafari í Eyjum, f. 30. janúar 1974. Kona hans Drífa Þöll Arnardóttir.

Þau Drífa giftu sig 2012, eignuðust tvö börn. Þau búa við Ásaveg 24.

I. Kona Gunnlaugs, (14. júlí 2012), er Drífa Þöll Arnardóttir, húsfreyja, kennari, f. 22. janúar 1975.
Börn þeirra:
1. Erlendur Gunnlaugsson, f. 27. janúar 2009.
2. Arna Gunnlaugsdóttir, f. 27. janúar 2009.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.