Kjartan Norðdahl
Kjartan Norðdahl Skúlason bóndi, verkamaður, afgreiðslumaður fæddist 24. apríl 1902 og lést 24. janúar 1982.
Foreldrar hans voru Skúli Norðdahl Guðmundsson, bóndi, vegaverkstjóri á Úlfarsfelli í Mosfellssveit, f. 18. mars 1870, d. 6. ágúst 1934, og kona hans Guðbjörg Norðdahl Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1873, d. 5. nóvember 1941.
Kjartan var bóndi um skeið, verkamaður í Eyjum, afgreiðslumaður í Rvk.
Þau Guðbjörg giftu sig 1924, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu að Goðafelli við Hvítingaveg 3, við Hásteinsveg 17, en síðan í Rvk.
Guðbjörg lést 1975 og Kjartan 1982.
I. Kona Kjartans, (7. september 1924), var Guðbjörg Úlfarsdóttir Norðdahl, húsfreyja, f. 7. september 1901, d. 3. febrúar 1975.
Börn þeirra:
1. Baldur Kjartansson Norðdahl, f. 17. október 1922 á Úlfarsfelli, d. 21. nóvember 1988.
2. Bragi Kjartansson Norðdahl, flugstjóri, ökukennari í Kópavogi, f. 7. desember 1924 á Goðafelli, d. 19. september 2011.
3. Freyja Kjartansdóttir Norðdahl, f. 28. desember 1926 að Hásteinsvegi 17, d. 16. janúar 2013.
4. Vignir Kjartansson Norðdahl, f. 29. febrúar 1932 í Rvk, d. 2. júní 2004.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
- Víkingslækjarætt – niðjatal Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar hreppstjóra. Pétur Zophoníasson og fleiri. Skuggsjá 1983.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.