Erla Víglundsdóttir
Erla Víglundsdóttir úr Reykjavík, húsfreyja, fiskiðnaðarkona fæddist 4. september 1944 og lést 9. maí 2020 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Víglundur Kristjánsson frá Söðulsholti í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi, verslunarmaður og fornsali í Reykjavík, f. 8. nóvember 1908, d. 28. janúar 1981, og kona hans Svava Jónsdóttir úr Reykjavík, húsfreyja, f. þar 6. júní 1918, d. 30. september 1995 í Eyjum.
Erla var með foreldrum sínum í æsku.
Hún flutti til Eyja 1964, var fiskverkakona í rúm 30 ár hjá Ísfélaginu.
Hún var virkur félagi í Sinawik.
Þau Friðrik giftu sig 1965, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu lengst við Áshamar 4.
Erla lést 2020.
I. Maður Erlu, (30. maí 1965), er Friðrik Helgi Ragnarsson vörubifreiðastjóri, f. 12. febrúar 1941.
Börn þeirra:
1. Sigurður Vignir Friðriksson verkamaður, sjómaður, matsveinn í Reykjavík, f. 21. mars 1964.
2. Vilborg Friðriksdóttir húsfreyja, verkakona í Eyjum, f. 23. nóvember 1965. Maður hennar Sigmar Þröstur Óskarsson Þórarinssonar.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið 26. maí 2020. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.