Hjörleifur Sigurjónsson
Hjörleifur fæddist 25. okt.1872, lézt 5. júní 1954.
Foreldrar voru Sigurjón bóndi á Tjörn í Svarfaðardal, en síðast á Húsavík Jónsson og Þórdís Hjörleifsdóttir.
Hjörleifur stundaði útgerð á Húsavík og í Eyjum eftir að hann fluttist þangað 1924. Var hann um skeið í félagi með Helga Benediktssyni. Á efri árum gerðist hann húsvörður við Barnaskólann, en flutti til dóttur sinnar í Kópavog 1948.
Maki (6. ágúst 1921): Stefanía Guðrún Hannesdóttir ljósmóðir. Þau bjuggu í
Engidal
Barn (kjörbarn): Björg Sigurveig, f. 24. júní 1920, búsett í Kópavogi. Maki: Hilmar Árnason.
Heimildir:
- Ljósmæður á Íslandi.
- Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja.
- Pers.