Gíslholt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. september 2006 kl. 09:31 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. september 2006 kl. 09:31 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Gíslholt og Skálholt.

Húsið Gíslholt stóð við Landagötu 20. Þar bjó lengst af með fjölskyldu sinni, Ólafur Vigfússon, formaður á Skúla fógeta VE um fjöldamörg ár, Eyfellingur að ætt. Ólafur stundaði ávallt búskap með sjómennskunni, var bæði með kýr og kindur. Frá Ólafi er kominn stór ættbogi Vestmannaeyinga og kennir sú ætt sig alla jafna við Gíslholt. Húsið fór undir hraun.

Í Gíslholti bjó m.a. Guðjón Ólafsson bæjarlistamaður í Vestmannaeyjum, sonur Ólafs.



Heimildir