Lárus L. Johnsen (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. nóvember 2022 kl. 20:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. nóvember 2022 kl. 20:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Lárus Lárusson Johnsen. '''Lárus Lárusson Johnsen''' kennari, starfsmaður á rannsóknastofu, skákmeistari fæddist 12. september 1923 í Reykjavík og lést 26. ágúst 2006.<br> Foreldrar hans voru Kristinn Lárus Jóhannsson Johnsen, frá Frydendal við Miðstræti 4, útgerðarmaður, kaupmaður, konsúll, f. þar 31. desember 1884, d. 15. október 1930, og kona hans Halldóra...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Lárus Lárusson Johnsen.

Lárus Lárusson Johnsen kennari, starfsmaður á rannsóknastofu, skákmeistari fæddist 12. september 1923 í Reykjavík og lést 26. ágúst 2006.
Foreldrar hans voru Kristinn Lárus Jóhannsson Johnsen, frá Frydendal við Miðstræti 4, útgerðarmaður, kaupmaður, konsúll, f. þar 31. desember 1884, d. 15. október 1930, og kona hans Halldóra Þórðardóttir frá Hól í Reykjavík, húsfreyja, f. 4. október 1892, d. 21. febrúar 1958.

Börn Halldóru og Lárusar:
1. Lárus Johnsen kennari, skrifstofumaður, skákmeistari, f. 12. september 1923, d. 26. ágúst 2006.
2. Sif Áslaug Johnsen húsfreyja í Reykjavík, f. 25. ágúst 1926, d. 12. maí 2006.
Barn Lárusar og Jónu Möller, f. 29. júlí 1890, d. 12. júní 1966:
3. Anna Sigríður Lárusdóttir Johnsen húsfreyja í Danmörku og á Íslandi, f. 5. maí 1913, d. 13. nóvember 2004.
Barn Lárusar og Guðlaugar Oddgeirsdóttur frá Ofanleiti, f. 20. janúar 1885, d. 21. desember 1966:
4. Haukur Lárusson Johnsen verkamaður, f. 17. nóvember 1914, d. 17. maí 1957.

Lárus var með foreldrum sínum, en faðir hans lést er Lárus var 7 ára. Móðir hans flutti með börnin til Reykjavíkur, bjó við Holtsgötu 12.
Lárus gekk í Miðbæjarskólann og lauk prófi frá Kvöldskóla KFUM í Reykjavík 1939, útskrifaðist í Kennaraskóla Íslands 1947, sótti kennaranámskeið í Askov í Danmörku 1949.
Hann var kennari við Barnaskólann í Eyjum 1947-1948, í Melaskólanum í Reykjavík 1949-1953, í Bessastaðaskóla á Álftanesi frá 1957-1958, í Vatnsleysustrandarhreppi 1958-1959 og 1963-1965, í Barnaskólanum í Eyjum 1959-1960, í Keflavík 1961-1963, á Akranesi 1965-1966, í Varmárskóla 1966-1968, Laugalandsskóla í Holtum 1979-1980.
Lárus var stundakennari í Iðnskólanum í Eyjum 1947-1948, var skrifstofumaður í Sjúkrasamlagi Reykjavíkur 1949-1953, á Keflavíkurvelli 1953-1956, hjá Bæjarsíma Reykjavíkur 1956-1957.
Lárus vann á Rannsóknastofu Háskólans við Barónstíg frá 1980, og áður á sumrin.
Lárus var skákmeistari Reykjavíkur 1947, Taflfélags Reykjavíkur 1948, Íslands 1951. Hann tefldi í sveit Íslands á Olympíuskákmótinu í Helsingfors 1952, hlaut 1. verðlaun í meistaraflokki A á Norðurlandaskákmóti í Ósló 1955, 3.-4. verðlaun á Norðurlandaskákmóti í Helsingfors 1957.
Þau Jóna Kristjana giftu sig 1956, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Reykjavík, Kópavogi og aftur í Reykjavík.
Lárus lést 2006 og Jóna Kristín 2018.

I. Kona Lárusar, (14. apríl 1956), var Jóna Kristín Jónsdóttir úr Reykjavík, hárgreiðslumeistari, f. 10. júlí 1930, d. 25. júní 2018. Foreldrar hennar voru Jón Kristján Kristjánsson sjómaður frá Bíldudal, f. 1. september 1894, d. 13. desember 1929, og Guðrún Helga Guðmundsdóttir frá Sóheimum í Hrunamannahreppi, f. 23. mars 1900, d. 11. janúar 1981. Stjúpfaðir Jónu og síðari maður Guðrúnar var Hannes Magnússon trésmíðameistari í Reykjavík, f. 24. september 1891, d. 31. desember 1968.
Börn þeirra:
1. Jón Kristján Johnsen verkamaður, f. 17. október 1956. Kona hans Sigrún Gunnarsdóttir.
2. Hannes Johnsen verkamaður, f. 19. september 1967.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Morgunblaðið 4. september 2006. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.