Guðjón Jónsson (Framnesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 14:23 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2006 kl. 14:23 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðjón Jónsson


Guðjón Jónsson, Framnesi, fæddist 22. febrúar 1885 að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Guðbjörg Guðmundsdóttir og Jón Steinmóðsson.

Guðjón ólst upp á Kirkjubæ og byrjaði snemma að stunda sjómennsku. Hann byrjaði formennsku á Narónu árið 1909 en var aðeins formaður eina vertíð. Sjómennsku stundaði hann þó fram til ársins 1935. Guðjón lést 24. janúar 1945.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.