Kratabúðin
Húsið Kratabúðin stendur við Skólaveg 2 og var byggt árið 1933. Þar var til húsa verslun sem hét þessu nafni og húsnæði Flugfélag Íslands var þar um fjölda ára. Alls konar önnur þjónusta hefur verið í húsinu; Mjólkurbúð, brauðbúð, skóbúð, minjagripaverslun, Parísarbúðin, Kalli í alföt, snyrtivörubúð, matvöruverslun Helga Ben og bókhaldsskrifstofa Ágústs Karlssonar.
Árið 1996 var húsinu gjörbreytt. Byggt var við það og húsið gert að íbúðarhúsi. Í dag er Lífeyrissjóður Vestmannaeyja í húsinu, auk þess sem að fimm íbúðir eru í húsinu á þremur hæðum.
Eigendur og íbúar
- Guðrún Jóhannsdóttir og Heiðmundur Sigurmundsson
- Helga Magnúsdóttir og Jón Ragnar Sævarsson
- Ingibjörg Bjarnadóttir verkakona
- Sigursteinn Óskarsson
{{Heimildir|