Ingveldur J. Þórðardóttir
Ingveldur Jónína Þórðardóttir (Inga) fæddist 1. október 1922 á Dyrhólum við Hásteinsveg 15b og lést 2. febrúar 2012 á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Holtsbúð, Vífilsstöðum.
Foreldrar hennar voru Þórður Halldór Gíslason netagerðarmeistari, meðhjálpari, f. 20. júní 1898, d. 17. mars 1993, og kona hans Jónína Guðjónsdóttir frá Sandfelli, húsfreyja, f. 15. febrúar 1903, d. 15. apríl 1995.
Börn Jónínu og Þórðar:
1. Ingveldur Jónína Þórðardóttir húsfreyja, f. 1. október 1922 á Dyrhólum, d. 2. febrúar 2012.
2. Hallgrímur Þórðarson netagerðarmeistari, f. 7. febrúar 1926 á Grímsstöðum, d. 8. október 2013.
3. Ellý Björg Þórðardóttir húsfreyja, skrifstofumaður, matráðskona, f. 13. apríl 1936 á Bárustíg 18, d. 24. desember 2003. Fyrri maður hennar Hreinn Svavarsson, síðari maður hennar Tryggvi Maríasson.
4. Kristín Karítas Þórðardóttir húsfreyja, talsímavörður, f. 18. mars 1941 í Fagradal, d. 20. desember 2000. Maður hennar Einar Norðfjörð.
Ingveldur var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann við fiskiðnað fram undir tvítugt, en fór þá til Reykjavíkur og vann á vöggustofu.
Þau Rútur giftu sig 1951, eignuðust þrjú börn. Þau leigðu í fyrstu við Vesturveg 3, en fluttu fljótlega í eigin íbúð við Sóleyjargötu 1 og bjuggu þar til Goss 1973.
Eftir flutning til Reykjavíkur vann Ingveldur við ræstingar og fleira á Landakotsspítala. Þau Rútur bjuggu lengst við Háaleitisbraut, síðan í íbúð fyrir eldri borgara við Dalbraut, en síðast í Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Holtsbúð á Vífilsstöðum.
Rútur lést 2001 og Ingveldur 2012.
I. Maður Ingveldar Jónínu, (29. september 1951), var Aðalsteinn Rútur Snorrason frá Steini við Vesturveg, kaupmaður, verslunarstjóri, f. 26. apríl 1918, d. 18. ágúst 2001.
Börn þeirra:
1. Snorri Þorgeir Rútsson, f. 10. febrúar 1953. Kona hans Hrefna Baldvinsdóttir.
2. Jónína Rútsdóttir húsfreyja, f. 6. júní 1955. Maður hennar Jón Pétur Jónsson.
3. Gylfi Þór Rútsson, f. 6. ágúst 1962. Kona hans Ágústa Kristjánsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Morgunblaðið 14. febrúar 2012. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.