Sighvatur Bjarnason (Ási)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2006 kl. 08:49 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2006 kl. 08:49 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sighvatur Bjarnason í Ási var fæddur á Stokkseyri 27 október 1903 og lést 15. nóvember 1975. Hann ólst upp á Stokkseyri en flutti til Vestmannaeyja árið 1925, þá rúmlega tvítugur. Sighvatur var kvæntur Guðmundu Torfadóttur frá Hnífsdal, eignuðust þau 8 börn.

Sighvatur varð fljótt einn af aflasælustu skipstjórum í Vestmannaeyjum. Hann varð einn af kunnustu síldarskipstjórum landsins og oftar en einu sinni aflakóngur á vetrarvertíð. Sighvatur varð fyrstur til að vinna aflakóngstitilinn, eftir að fjölskylda Hannesar lóðs gaf skipið árið 1953, til áhafnarinnar á Erlingi III.

Sighvatur eignaðist sinn fyrsta bát árið 1926 og fylgdu fleiri á eftir. Sighvatur var gæfumaður í starfi og hlaut hina íslensku fálkaorðu fyrir björgun skips í sjávarháska. Sighvatur hætti til sjós 1959 og gerðist þá framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Sighvatur var framkvæmdastjóri þar í fjöldamörg ár, meðal annars gosárið 1973, en þá fluttist hann búferlum í verbúðir Vinnslustöðvarinnar og bjuggu hann og Guðmunda, kona hans, þar nær allt gostímabilið.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Sighvat:

Erling stýrir ávallt klár
æst þó stormur blási,
þorsk- og síldar sjólinn knár
Sighvatur í Ási.



Heimildir