Georg Stanley Aðalsteinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. mars 2021 kl. 13:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. mars 2021 kl. 13:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Georg Stanley Aðalsteinsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Georg Stanley Aðalsteinsson.

Georg Stanley Aðalsteinsson sjómaður, skipstjóri fæddist 1. desember 1936 í Reykjavík og lést 26. febrúar 2021.
Foreldrar hans voru Aðalsteinn Hólm Þorsteinsson vélstjóri, járnsmiður frá Hliðsnesi á Álftanesi, f. 22. ágúst 1914, d. 4. maí 1961, og Helga Guðbjörg Kristjánsdóttir frá Búðum í Eyrarsveit á Snæfellsnesi, f. 29. apríl 1919, d. 19. desember 1943.

Þau Arndís giftu sig 1964, eignuðust tvö börn, bjuggu á Ólafsvöllum við Strandveg 61, Höfðahúsi við Vesturveg 8, Heiðarvegi 11 við Gos 1973, síðar Heiðarvegi 44 og síðast á Áshamri 3a.
Arndís lést 2009,
Georg dvaldi síðast í Ási í Hveragerði.
Hann lést 2021.

I. Kona Georgs Stanleys, (31. desember 1964), var Arndís Pálsdóttir húsfreyja, fiskiðnaðarkona, f. 29. september 1938, d. 20. apríl 2009.
Börn þeirra:
1. Páll Arnar Georgsson vélstjóri, f. 4. mars 1958. Fyrrum kona hans Guðrún Jóna Reynisdóttir.
2. Helgi Heiðar Georgsson skipstjóri, útgerðarmaður, deildarstjóri í Framhaldsskóla A-Skaft., f. 8. mars 1959. Fyrrum kona hans Guðrún Magnea Teitsdóttir. Kona hans Erla Oddsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 11. mars 2021. Minning
  • Prestþjónustubækur.
  • Þjóðskrá 1986.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.