Þuríður M. Georgsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. maí 2021 kl. 10:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. maí 2021 kl. 10:19 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|150px|''Þuríður Margrét Georgsdóttir. '''Þuríður Margrét Georgsdóttir''' húsfreyja, fiskiðnaðarkona, verkstjóri fæddist...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þuríður Margrét Georgsdóttir.

Þuríður Margrét Georgsdóttir húsfreyja, fiskiðnaðarkona, verkstjóri fæddist 6. mars 1948 á Bergstaðastræti 17 í Reykjavík og lést 19. september 2005.
Foreldrar hennar voru Georg Bergfors íþróttaþjálfari, sænskrar ættar, og Árný Fjóla Stefánsdóttir verkakona, f. 9. desember 1923, d. 30. nóvember 1996.
Uppeldisfaðir Þuríðar var Stefán Agnar Magnússon, f. 27. nóvember 1916, d. 9. september 1974.

Þuríður fluttist til Eyja 1972, vann við fiskiðnað, var verkstjóri.
Þau Róbert giftu sig 1972, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu í Franska spítalanum, bjuggu eftir Gos á Hrauntúni 21, Vesturvegi 21, Strembugötu 10 og Hásteinsvegi 52. Þau fluttu í Kópavog 2003, bjuggu á Álfhólsvegi þar til 2005.
Þuríður lést 2005.
Róbert flutti til Eyja 2008. Hann lést 2020.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
  • Íslendingabók.
  • Jósúa.
  • Morgunblaðið 3. október 2005. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.