Alfreð Benediktsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. ágúst 2020 kl. 11:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. ágúst 2020 kl. 11:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Alfreð Alexander Benediktsson''' frá Vinaminni og Þingvöllum, sjómaður í Reykjavík fæddist 14. desember 1911 í Vinaminni og lést 9. nóvember 1946.<...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Alfreð Alexander Benediktsson frá Vinaminni og Þingvöllum, sjómaður í Reykjavík fæddist 14. desember 1911 í Vinaminni og lést 9. nóvember 1946.
Foreldrar hans voru Benedikt Friðriksson frá Gröf, skósmiður, f. 26. febrúar 1887, d. 11. febrúar 1941, og fyrri kona hans Elsa Dóróthea Ólafía Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 28. apríl 1889 á Seyðisfirði, d. 4. desember 1918.

Börn Benedikts og fyrri konu hans Elsu Dórótheu Guðmundsdóttur:
1. Alfreð Alexander Benediktsson sjómaður í Reykjavík, f. 14. desember 1911 í Vinaminni, bjó síðast á Grettisgötu 37 í Reykjavík, d. 9. nóvember 1946.
2. Ottó Berent Elías Benediktsson bakari, síðast í Reykjavík, f. 2. nóvember 1917 á Þingvöllum, d. 31. maí 1990.
Börn Benedikts og síðari konu hans Guðrúnar Pálsdóttur:
3. Elsabet Ester Benediktsdóttir húsfreyja, verslunarmaður í Reykjavík, f. 29. ágúst 1926 á Þingvöllum, d. 8. apríl 2018.
4. Friðrik Pálmar Benediktsson öryrki, f. 31. október 1927 á Þingvöllum, d. 17. júní 1994.
5. Hörður Benediktsson múrarameistari, f. 29. júlí 1930 í Reykjavík, d. 23. júlí 2009.
6. Sverrir Benediktsson hárskeri, f. 21. júlí 1931 í Reykjavík.
7. Soffía Eygló Benediktsdóttir húsfreyja, iðnverkakona, f. 24. maí 1935 í Reykjavík.

Alfreð var sjómaður, bjó á Grettisgötu 37 í Reykjavík. Hann veiktist af berklum og lést 1946, ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.