Guðný Bjarnadóttir (ljósmóðir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 11:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 11:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|220px|Guðný '''Guðný Bjarnadóttir''' ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur fæddist 10. desember 1950 að Kjalvararstöðum í Reykholts...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðný

Guðný Bjarnadóttir ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur fæddist 10. desember 1950 að Kjalvararstöðum í Reykholtsdal í Borgarfirði.

Ætt og uppruni

Foreldrar Guðnýjar voru Bjarni Þorsteinn bóndi á Kjalvararstöðum, f. 16. nóvember 1905, d. 27. júlí 1984, Halldórs bónda þar, f. 4. ágúst 1867, d. 5. maí 1961, Þórðarsonar í Skáneyjarkoti, Halldórssonar og konu Halldórs bónda á Kjalvararstöðum, Guðnýjar húsfreyju, f. 15. september 1870, d. 2. marz 1951, Þorsteins bónda í Gróf í Reykholtsdal Sigmundssonar. Móðir Guðnýjar og kona Bjarna á Kjalvararstöðum var Þórlaug Margrét húsfreyja, f. 6. marz 1909 á Sauðárkróki, d. 3. nóvember 1972, Símonar sjómanns og járnsmiðs á Sauðárkróki, f. 1876, d. 1931, Jónssonar bónda á Neðra-Nesi á Skaga, Einarssonar og ráðskonu Símonar, Guðrúnar, f. 1883, d. 1962, Þorsteinsdóttur, Þorsteinssonar.
Þorsteinn Sigmundsson bóndi í Gróf var afabarn Þiðriks Ólafssonar bónda í Geirshlíð, f. 1763, en Þiðrik er ættfaðir Jónu Dóru Kristinsdóttur og Drífu Björnsdóttur ljósmæðra í Eyjum og Þorsteins Víglundssonar skólastjóra og sparisjóðsstjóra.

Nám og starfsferill

Guðný lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum í Reykholti 1967. Hún varð hjúkrunarfræðingur frá Hjúkrunarskóla Íslands1972, svæfingahjúkrunarfræðingur frá Nýja Hjúkrunarskólanum 1979 og ljósmæðraprófi lauk hún frá Ljósmæðraskóla Íslands 1988.
Hún lauk 7. einingum af námi til mastersprófs í sálgæzlufræðum við Endurmenntunarstofnun og guðfræðideild Háskóla Íslands.
Guðný er nú í djáknanámi við guðfræðideildina.

Eftir að hjúkrunarnámi lauk starfaði Guðný á sjúkrahúsum í Reykjavík og á Akranesi, en frá 1979 við sjúkrahúsið í Eyjum, fyrst sem hjúkrunarfræðingur, en frá 1988 sem ljósmóðir, en er nú í námsleyfi.
Guðný var formaður Vesturlandsdeildar Hjúkrunarfélags Íslands í eitt ár, varabæjarfulltrúi í Eyjum í tvö kjörtímabil frá 1990-1998 og var aðalfulltrúi í félagsmálanefnd þau skeið. Auk þess var hún fulltrúi í sóknarnefnd Ofanleitissóknar eitt kjörtímabil.

Maki: Kristján Gunnar Eggertsson rafvirkjameistari, f. 20. ágúst 1947. Foreldrar hans voru Eggert Ólafsson skipasmíðameistari, f. 7. marz 1924, d. 12. apríl 1980 og k.h. Helga Ólafsdóttir húsfreyja, f. 13. janúar 1925, d. 11. apríl 1997.


Heimildir

  • Borgfirzkar æviskrár.
  • Guðný Bjarnadóttir.
  • Pers.
  • Skagfirzkar æviskrár 1850-1890. III.105-107.
  • Vestfirzkar ættir.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.