Viðar Óskarsson (rafvirkjameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. október 2019 kl. 12:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. október 2019 kl. 12:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Viðar Óskarsson''' rafvirkjameistari fæddist 17. mars 1938 á Vesturvegi 29.<br> Foreldrar hans voru Óskar Þorsteinsson bifreiðast...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Viðar Óskarsson rafvirkjameistari fæddist 17. mars 1938 á Vesturvegi 29.
Foreldrar hans voru Óskar Þorsteinsson bifreiðastjóri, f. 22. mars 1908 í Laugardal, d. 22. júní 1995, og kona hans Þórdís Jóhannesdóttir frá Glerá í Eyjafirði, húsfreyja, f. 14. október 1913, d. 15. nóvember 1985.

Viðar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk gagnfræðaprófi í Gagnfræðaskólanum 1955, nam rafvirkjun hjá Neista. Meistari var Boga Jóhannsson. Hann lauk sveinsprófi 1963, fékk meistarabréf 1966 og löggildingu 1967.
Viðar strarfaði hjá Neista til 1973, er hann varð rafmagnsstjóri hjá Fiskiðjunni og þar var hann til 1992.
Þau Sigurbjörg giftu sig 1968, eignuðust tvö börn. Þau hafa búið á Höfðavegi 26.

I. Kona Viðars, (16. mars 1968), er Sigurbjörg Jónasdóttir frá Grundarbrekku, húsfreyja, skrifstofumaður, ræstitæknir, f. 7. febrúar 1942.
Börn þeirra:
1. Jónas Rúnar Viðarsson sjávarútvegsfræðingur, MSc-umhverfis- og auðlindafræðingur, f. 26. apríl 1971. Hann er starfsmaður Matís. Kona hans er Inger Daníelsdóttir.
2. Hafþór Óskar Viðarsson lærður hljóðmaður, vélvirki. Hann vinnur hjá Hval hf. í Hvalfirði, f. 16. maí 1976. Kona hans er Arna Erlingsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.