Guðrún Alfreðsdóttir (Hvassafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. mars 2019 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. mars 2019 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Guðrún Alfreðsdóttir. '''Guðrún Alfreðsdóttir''' frá Hvassafelli, húsfreyja fæddist þar 27. júlí 19...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún Alfreðsdóttir.

Guðrún Alfreðsdóttir frá Hvassafelli, húsfreyja fæddist þar 27. júlí 1939 og lést 17. apríl 2016.
Foreldrar hennar voru Jón Alfreð Sturluson málarameistari, f. 23. nóvember 1912 á Búastöðum, d. 31. október 1983, og kona hans Steinunn Jónsdóttir frá Lágafelli í Staðarsveit, f. 3. febrúar 1919, d. 16. apríl 2006.

Systir Guðrúnar var
1. Fríður Alfreðsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1942, d. 1. maí 1974.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Reykjavíkur 1946 og bjó lengst við Laugaveg.
Þau Böðvar giftur sig 1960, eignuðust þrjú börn, bjuggu í Reykjavík, en skildu.
Guðrún var í sambýli við Sigurdór Steinar Eggertsson og bjó með honum í Fossvogi.
Hún lést 2016.

I. Maður Guðrúnar, (1960), var Böðvar Böðvarsson húsasmíðameistari, f. 23. júním 1936, d. 9. mars 2014. Foreldrar hans voru Böðvar Stephensen Bjarnason, f. 1. október 1904, d. 23. ágúst 1986, og Ragnhildur Dagbjört Jónsdóttir, f. 31. mars 1904, d. 23. júlí 1993.
Börn þeirra:
1. Alfreð Sturla Böðvarsson heimspekingur, leikmynda- og ljósahönnuður, f. 27. febrúar 1961. Kona hans er Helga Rún Pálsdóttir.
2. Steinunn Böðvarsdóttir stjórnmálafræðingur, skrifstofumaður hjá VR, f. 23. maí 1962. Maður hennar er Gunnar Björnsson.
3. Soffía Böðvarsdóttir BA í spænsku, kennari, f. 16. ágúst 1965, ógift.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.