Magnea Árnadóttir (Varmadal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. október 2017 kl. 20:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. október 2017 kl. 20:41 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: 200px|thumb|''Magnea Sveinbjörg Árnadóttir. '''Magnea Sveinbjörg Árnadóttir''' húsfreyja, ættfræðingur í Reykjavík fæddist 12. september...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Magnea Sveinbjörg Árnadóttir.

Magnea Sveinbjörg Árnadóttir húsfreyja, ættfræðingur í Reykjavík fæddist 12. september 1930 í Skálanesi.
Foreldrar hennar voru Árni Magnússon sjómaður í Eyjum, síðar bóndi á Kröggólfsstöðum í Ölfusi og sjómaður í Þorlákshöfn, f. 26. febrúar 1902 að Steinum u. Eyjafjöllum, d. 1. október 1961 í Þorlákshöfn, og kona hans Helga Sveinsdóttir húsfreyja og bóndi, f. 10. ágúst 1900 í Framnesi á Eyrarbakka, d. 2. ágúst 1974 í Reykjavík .

Börn Helgu og Árna voru:
1. Sigurður Kristján Árnason húsasmíðameistari, listmálari, f. 20. september 1925 á Bergstöðum.
2. Ragnar Guðbjartur Árnason verkamaður í Þorlákshöfn, f. 24. september 1926 á Bergstöðum, d. 31. desember 2004.
3. Magnús Sveinberg Árnason, f. 17. apríl 1929 í Langa-Hvammi, (Magnús Sveinbjörn, f. 24. apríl, segir Magnea systir hans), d. 16. febrúar 1930.
4. Magnea Sveinbjörg Árnadóttir húsfreyja, ættfræðingur, f. 12. september 1930 í Skálanesi.
5. Sigrún Árnadóttir öryrki, f. 25. janúar 1932 í Varmadal, d. 15. janúar 2004.
6. Jónína Helga Árnadóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1935 á Hásteinsvegi 17, d. 7. desember 2009.
7. Ragnhildur Árnadóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 6. ágúst 1938 í Reykjavík, d. 14. janúar 2013.

Magnea var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim í Skálanesi 1930, á Skólavegi 24, (Varmadal) í lok ársins og enn 1934, á Hásteinsvegi 1937 og að Kröggólfsstöðum í Ölfusi 1942.
Magnea hefur unnið mikið að ættfræðirannsóknum. Meðal rita hennar í handriti eru:
Valdaætt (Sauðhúsvallaætt).
Jón Einarsson í Gerðakoti.
Þorvaldur Jónsson í Vallahjáleigu.
Selkotsætt
og margt fleira.
Hún eignaðist Helgu 1955 með Garðari bróður Vilborgar konu Sigurðar bróður síns.
Hún býr með Jakobi Marteinssyni, en þau eru barnlaus.

I. Barnsfaðir Magneu var Garðar Vigfússon frá Húsatóftum á Skeiðum, bóndi, smiður, starfsmaður sæðingastöðvarinnar að Laugardælum, f. 28. febrúar 1928, d. 3. febrúar 2007.
Barn þeirra:
1. Helga Garðarsdóttir umhverfisfræðingur frá Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 14. ágúst 1955 að Kröggólfsstöðum í Ölfusi.

II. Sambýlismaður Magneu er Jakob Marteinsson frá Hálsi í Köldukinn, S.-Þing., f. 28. febrúar 1928. Foreldrar hans voru Marteinn Marteinsson bóndi og kona hans Aðalbjörg Jakobsdóttir húsfreyja og bóndi.
Þau eru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnea Árnadóttir. Valdaætt, í handriti. 1992.
  • Manntöl
  • Prestþjónustubækur.
  • Ölfusingar - búendatal Ölfushrepps 1703-1980. Eiríkur Einarsson. Reykjavík. Sögusteinn 1985.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.