Hjörtur Einarsson (Geithálsi)
![](/images/thumb/9/9c/Hj%C3%B6rtur_Einarsson%2C_Geith%C3%A1lsi.png/250px-Hj%C3%B6rtur_Einarsson%2C_Geith%C3%A1lsi.png)
Hjörtur Einarsson, Geithálsi, fæddist 19. ágúst 1887 að Þorlaugargerði í Vestmannaeyjum og lést 30. desember 1975. Foreldrar hans voru Einar Sveinsson og Guðríður Helgadóttir.
Eiginkona Hjartar var Katrín Sigurlín Sveinbjarnardóttir og bjuggu þau á Geithálsi við Herjólfsgötu.
Formennsku hóf Hjörtur árið 1912 á Frið og var formaður þar til 1919 en þá lét hann af formennsku. Eftir það var hann vélamaður í fjölda vertíða.
Hjörtur bjó á elliheimilinu Skálholti við Urðaveg seinni árin.
![ctr](/images/thumb/5/5b/KG-mannamyndir_4934.jpg/250px-KG-mannamyndir_4934.jpg)
- Hjörtur, Katrín og börn.
Myndir
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.