Hinrik Gíslason (Heiðardal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. mars 2016 kl. 12:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. mars 2016 kl. 12:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Hinrik Gíslason (Heiðardal)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Hinrik Gíslason vélstjóri, formaður fæddist 4. júní 1909 á Kaðalsstöðum í Flóa og lést 4. mars 1986.
Foreldrar hans voru Gísli Gíslason bóndi, síðar verkamaður í Eyjum, f. 27. nóvember 1866 á Kotferju í Sandvíkurhreppi í Flóa, d. 29. desember 1935, og kona hans Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, síðar í Heiðardal, f. 6. október 1868 á Kaðalsstöðum, d. 30. desember 1945.

Hinrik var með fjölskyldu sinni á Kaðalsstöðum 1910 og 1920.
Foreldrar hans, hann og systkini hans Ingibjörg og Gísli fluttust til Eyja 1927 og var Hinrik sjómaður í Heiðardal 1930, verkamaður þar 1934, bátsformaður í Drangey (Kirkjuvegi 84) 1940.
Hann var vélstjóri á Fagrakletti GK í Bretlandssiglingum á stríðsárunum, síðar vélstjóri á Þórunni VE.
Þá var hann um langt skeið vélstjóri við Rafveituna. Þar hætti hann 1960 og varð vélstjóri við Hraðfrystistöðina og síðar FES í Eyjum.
Þau Vilmunda giftu sig 1943, eignuðust Gunnar Ármann á því ári, Helgu 1946 og Guðrúnu 1953.
Þau byggðu húsið að Skólavegi 15 og voru komin þangað 1949 með börnin.
Hinrik lést 1986.

Kona Hinriks, (31. desember 1943), var Vilmunda Einarsdóttir húsfreyja, f. 10. október 1908, d. 23. júní 1988.
Börn þeirra eru:
1. Gunnar Ármann Hinriksson rafvirki, f. 23. júlí 1943.
2. Helga Hinriksdóttir ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur, deildarstjóri, f. 12. ágúst 1946.
3. Guðrún Hinriksdóttir sjúkraliði, f. 12. október 1953.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.