Vilhjálmur Einar Magnússon (Presthúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. febrúar 2016 kl. 21:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2016 kl. 21:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Vilhjálmur Einar Magnússon''' frá Presthúsum fæddist 6. september 1887 og lést 25. september 1953.<br> Foreldrar hans voru [[Magnús Vigfússon (Presthúsum)|Magnús Vigf...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Vilhjálmur Einar Magnússon frá Presthúsum fæddist 6. september 1887 og lést 25. september 1953.
Foreldrar hans voru Magnús Vigfússon bóndi í Presthúsum, f. 1. október 1854, d. 13. ágúst 1926, og kona hans Sigríður Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 21. mars 1845, d. 18. október 1907.

Börn Magnúsar og Sigríðar voru:
1. Guðrún Helga , f. 5. júní 1878. Hún fór til Vesturheims.
2. Guðmundur á Löndum, f. 15. september 1880 í Dölum, d. 19. mars 1952 í Reykjavík.
3. Sigfús Magnússon, f. 20. desember 1881 á Vilborgarstöðum, d. 13. janúar 1882 úr „krampa“.
4. Jórunn Ingileif, f. 10. október 1883, d. 14. júlí 1962, gift Guðmundi Guðmundssyni í Ey, f. 6. júlí 1864, d. 24. nóvember 1928.
5. Vilhjálmur Einar, f. 6. september 1887, d. 25. september 1953.

Vilhjálmur Einar var með fjölskyldu sinni í Presthúsum 1890, var hjá Sigurði föðurbróður sínum og Þorgerði á Fögruvöllum 1901.
Hann var húsmaður á Nýlendu 1909 með Guðbjörgu Jónsdóttur og barni hennar nýfæddu.
Vilhjálmur var leigjandi, útgerðarmaður og sjómaður í Litlabæ 1910.
Hann fluttist til Reykjavíkur, var húsbóndi á Bergþórugötu 12 1920 með Ólöfu Eiríksdóttur húsfreyju, f. 20. september 1883, d. 12. apríl 1964. Með þeim var Lydia Pálmarsdóttir, dóttir Ólafar, f. 1918.
Vilhjálmur Einar stundaði verkamannastörf, lést 1953.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.