Helgi Jónsson (Steinum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. október 2015 kl. 20:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. október 2015 kl. 20:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Helgi Jónsson''' trésmiður og útgerðarmaður í Steinum fæddist 1. júní 1858 í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum og lést 5. nóvember 1937.<br> Faðir h...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Helgi Jónsson trésmiður og útgerðarmaður í Steinum fæddist 1. júní 1858 í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum og lést 5. nóvember 1937.
Faðir hans var Jón bóndi í Steinum og á Leirum þar, f. 13. júlí 1836, d. 24. febrúar 1894, Helgason bónda í Steinum, f. í Kaldaðarnessókn um 1795, d. 10. apríl 1863, Guðmundssonar í Kálfhaga þar Jónssonar.
Móðir Jóns bónda í Steinum og kona Helga var Margrét húsfreyja, f. 10. maí 1798 í Holtssókn undir Eyjafjöllum, d. 23. júlí 1890, Jónsdóttir bónda í Björnskoti þar 1801, Björnssonar og konu hans, Geirlaugar Gottsveinsdóttur húsfreyju.

Móðir Helga í Steinum og kona Jóns bónda í Steinum var Guðrún húsfreyja í Steinum, f. 9. júní 1837 í Skógasókn, d. 13. október 1896 í Eyjum, Sveinsdóttir bónda í Ytri-Skógum, f. 1800, d. 13. apríl 1852, Ísleifssonar bónda í Skógum, f. 1744, Jónssonar lögréttumanns Ísleifssonar.
Móðir Sveins bónda í Ytri-Skógum og þriðja kona Ísleifs var Þórunn húsfreyja í Skógum, f. 1770 í Ólafshúsum í Stóra-Dalssókn, Sveinsdóttir og konu Sveins, Guðrúnar Ísólfsdóttur.
Móðir Guðrúnar húsfreyju í Steinum og fyrri kona Sveins bónda í Ytri-Skógum var Sigríður Nikulásdóttir húsfreyja þar 1835, f. 28. september 1802, d. 11. mars 1840. Móðir Sigríðar var Elín Þórðardóttir í Hlíðarhúsi í Reykjavík Sighvatssonar og konu hans Ingiríðar Ólafsdóttur prests Jónssonar Thorlacius.

Bræður Helga í Eyjum voru:
1. Sveinn Jónsson smiður á Sveinsstöðum, f. 19. apríl 1862, d. 13. maí 1947.
2. Ísleifur Jónsson útgerðarmaður, sjómaður í Nýjahúsi, f. 6. september 1881, d. 20. desember 1932..

Helgi var með foreldrum sínum á Leirum uns hann fluttist til Eyja 1890. Hann var húsmaður í London 1894, kominn að Steinum 1895 og bjó þar síðan.

Kona Helga, (1894), var Þórunn Guðmundsdóttir frá London, f. 19. september 1867, d. 26. febrúar 1924.
Börn þeirra hér:
1. Þorsteinn Helgason, f. 9. apríl 1891, d. 3. janúar 1918.
2. Jónína Guðrún Helgadóttir ráðskona í Steinum 1930, f. 27. júní 1894, d. 17. maí 1983.
3. Guðmundur Helgason útgerðarmaður, síðar veggfóðrari, f. 3. febrúar 1898, d. 13. maí 1983. Kona hans, skildu, var Ingveldur Þórarinsdóttir.
4. Una Magnúsína Helgadóttir húsfreyja í Miðgarði, f. 17. júní 1901, d. 28. ágúst 1990. Maður hennar var Ólafur Ísleifsson.
5. Jónína Sigrún Helgadóttir, f. 19. mars 1908, d. 17. apríl 1980.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.