Jón Júlíus Sveinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. mars 2014 kl. 20:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. mars 2014 kl. 20:17 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Júlíus Sveinsson Vesturfari frá Löndum fæddist 1. desember 1872 og lést 24. maí 1951 Vestanhafs. Hann bar eftirnafnið Thorderson Vestra.
Foreldrar hans voru Sveinn Þórðarson beykir á Löndum, f. 18. febrúar 1827 og 4. nóvember 1901 Vestanhafs, og kona hans Helga Árnadóttir húsfreyja, f. 6. júlí 1833, d. 15. febrúar 1907 í Vesturheimi.

Jón Júlíus fór til Vesturheims 1878 með foreldrum sínum. Hann sótti landið heim 1903 með trúboð á vegum mormóna.
Hann var bóndi í Cleveland í Ernery-héraði í Utah.
Hann lést eftir hjartaáfall 1951.

Jón Júlíus var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (5. desember 1894), var Emma Marie Jensen af dönskum ættum, d. 1895.
Barn þeirra var
1. Christina Matilda Thorderson.

II. Síðari kona hans, (3. janúar 1906) var Freida Olaffson.
Börn þeirra voru:
2. Julius Svein Thorderson.
3. Lawrence Erlender Thorderson.
4. Parley Eugene Thorderson.
5. Helga Erasmuson Thorderson.
6. Emma Pauline Thorderson.
7. Stúlka.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Google.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.