Guðjón Kristinsson (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. júlí 2012 kl. 16:26 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. júlí 2012 kl. 16:26 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Gaui á Hvoli.

Guðjón Kristinsson fæddist 29. nóvember 1917 og lést 28. mars 1975. Hann bjó á Hvoli við Urðaveg 17 og síðar á Vesturvegi 31. Hann var oftast kenndur við heimili sitt Hvol, en einnig við æskuheimilið Miðhús-vestri.

Kona hans var Kristín Ólafsdóttir. Börn þeirra voru Matthías, Jensína, Ólafur, Hörður, Hrefna og Bryndís.

Guðjón var skipstjóri og útgerðarmaður, m.a. á Hrauney VE.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðjón:

Kristinsson Guðjón gistir
glæstum á bakka næsta.
Jón Stefáns lætur lóna
laginn um æstan sæinn.
Stórhuga stýris-Þórinn
stífur inn þorskinn drífur,
frökk þó að Rán í rökkri
rökk hýði fríðan nökkva.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.