Aðalheiður Sigurðardóttir (Hvammi)
Guðbjörg Aðalheiður Sigurðardóttir húsfreyja í Hvammi, fæddist 15. febrúar 1896 á Fögruvöllum og lést 30. janúar 1958.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sveinbjörnsson bóndi í Brekkuhúsi, f. 20. júní 1865, d. 11. júní 1933, og kona hans Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja, fædd 20. janúar 1863, d. 3. júní 1956.
Aðalheiður ólst upp með foreldrum sínum á Fögruvöllum og í Brekkuhúsi. Þau Árni byrjuðu búskap í Bræðraborg, en síðan bjuggu þau í
Hvammi. Þar fæddi Aðalheiður 9 börn. Hún hafði sérstakt yndi af garðrækt og bar húsgarður þeirra Árna þess glöggt vitni, en þar ræktaði hún tré og blóm.
Maður Aðalheiðar var Árni Sigurjón Finnbogason skipstjóri frá Norðurgarði, f. 5. desember 1893, d. 22. júní 1992.
Börn Árna og Aðalheiðar:
1. Rósa húsfreyja, f. 25. júní 1916, d. 12. mars 1983, fyrr gift Þórarni Bernótussyni, síðar Birni Arnórssyni.
2. Ráðhildur húsfreyja, f. 24. júní 1917, d. 14. janúar 1997, gift Gísla Þorsteinssyni.
3. Ágústa Kristín, f. 20. janúar 1919, d. 24. júní 1919.
4. Sigurbjörn sjómaður, fæddur 6. mars 1920, d. 31. desember 1998, fyrr kvæntur Maríu Björgvinsdóttur, síðar Ester S. Snæbjörnsdóttur.
5. Ágústa Kristín Árnadóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1921, gift Emil Jóhanni Magnússyni kaupmanni í Grundarfirði.
6. Aðalheiður Árnadóttir húsfreyja, f. 5. desember 1925, d. 20. september 1989, gift Pálma Péturssyni kennara.
7. Áslaug Árnadóttir húsfreyja, fædd 20. janúar 1928, d. 18. júlí 2007, gift Pétri Sveinssyni bifreiðastjóra.
8. Finnbogi Árnason rafvirkjameistari, fæddur 5. maí 1930, kvæntur Guðbjörgu Þóru Steinsdóttur.
9. Borgþór Árnason vélstjóri, fæddur 27. september 1932, d. 14. febrúar 2008, kvæntur (skildu) Guðrúnu Andersen.
Sjá einnig: Blik 1961, Hjónin í Brekkhúsi.
Heimildir
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.
- Finnbogi Árnason.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.