Grímur Jónsson (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. febrúar 2015 kl. 20:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. febrúar 2015 kl. 20:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Grímur Jónsson (Gjábakka)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Grímur Jónsson vinnumaður á Gjábakka fæddist 25. ágúst 1818 og lést 21. febrúar 1842.
Foreldrar hans voru Jón Einarsson eldri bóndi á Gjábakka, f. 1789, d. 21. mars 1838, og kona hans Margrét Vigfúsdóttir húsfreyja, skírð 1795, d. 23. febrúar 1836.

Grímur fluttist ti Eyja með foreldrum sinum 1828.
Hann var vinnumaður hjá þeim, er hann drukknaði á „skipalegunni“ 1842.
Grímur var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir