Halldór Jónsson (Helgabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. nóvember 2014 kl. 21:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. nóvember 2014 kl. 21:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Halldór Jónsson (Helgabæ)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Halldór Jónsson tómthúsmaður, sjómaður í Helgabæ fæddist 14. desember 1832 í Lágu-Kotey í Meðallandi og drukknaði í apríl 1867.
Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi, síðast á Grímsstöðum í Meðallandi, f. 22. október 1796 á Grímsstöðum, d. 19. september 1887 þar, og fyrri kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 1801 á Brunnum í Suðursveit, d. 29. júlí 1863 í Skurðbæ í Meðallandi.

Halldór var í frumbernsku með foreldrum sínum, var fósturbarn í Langholti í Meðallandi 1834-1835, í Skurðbæ 1835-1836 á Undirhrauni þar 1836-1848, á Syðri-Steinsmýri þar 1848-1853.
Hann var vinnumaður í Langholti 1856-1858, húsmaður þar 1858-1860.
Þau Jóhanna komu frá Langholti að Helgahjalli 1860 með barnið Jóhann á 3. árinu. Þau voru tómthúsfólk í Helgabæ á því ári, - (Helgabær og Helgahjallur voru hvortveggja tómthús), - og þeim fæddist Gunnar í september sama ár .
Guðrúnu eignuðust þau 1861.
Halldór missti Jóhönnu 1864 og varð að koma börnunum fyrir á heimaslóð í Meðallandi.
Hann var háseti hjá Magnúsi Oddssyni á þilskipinu Helgu, sem týndist í apríl 1867.

I. Kona hans, (17. júlí 1857), var Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1833, d. 7. mars 1864.
Börn þeirra hér:
1. Jóhann Halldórsson, f. 4. nóvember 1857 í Langholti í Meðallandi. Hann var með foreldrum sínum í Langholti 1860, fór með þeim til Eyja á því ári, fór 7 ára í Meðalland 1864, var tökubarn í Langholt þar 1864-1869, á sveit á Syðri-Steinsmýri 1869-1871. Þá fór hann að Helliskoti. Hann var vinnumaður á Minni-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd 1880.
2. Gunnar Halldórsson, f. 6. september 1860, d. 5. júlí 1861.
3. Guðrún Halldórsdóttir, f. 14. nóvember 1861, d. 26. júlí 1933. Hún var niðursetningur á Skurðbæ í Meðallandi 1865-1877, vinnukona á Grímsstöðum þar 1866-1877, í Skurðbæ 1867-1894, fór þá að Elliðavatni.


Heimildir