Sesselja Árnadóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. ágúst 2014 kl. 21:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. ágúst 2014 kl. 21:52 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sesselja Árnadóttir húsfreyja í Ystabæliskoti u. Eyjafjöllum fæddist um 1769 og lést 7. febrúar 1841.

Líklega er hún sú, sem var vinnukona í Drangshlíð u. Eyjafjöllum 1788, var húsfreyja í Ystabæliskoti 1796, finnst ekki með vissu á manntali 1801, var komin til Eyja 1804.
Hún var hjá Ingveldi dóttur sinni á Kirkjubæ 1835 og 1840.

Maður Sesselju, (16. maí 1783), var Magnús Jónsson bóndi í Ystabæliskoti, síðar hjá fólki sínu í Háagarði, f. 1765, d. 6. júlí 1835.
Börn þeirra hér:
1. Sigurður Magnússon bóndi í Háagarði, f. 1794, d. 10. febrúar 1833, kvæntur Björgu Brynjólfsdóttur.
2. Ingveldur Magnúsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 2. janúsr 1796, d. 13. október 1868, kona Odds Ögmundssonar.


Heimildir