Ingveldur Magnúsdóttir (Kirkjubæ)
Ingveldur Magnúsdóttir frá Löndum, húsmóðir á Kirkjubæ, f. 2. janúar 1796 í Yztabæliskoti u. Eyjafjöllum, d. 13. október 1868 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Magnús bóndi í Yztabæliskoti, síðar í Háagarði, f. um 1765, Jónsson, f. 1732, Þorleifssonar og kona hans, (16. maí 1793), Sesselja Árnadóttir, f. um 1769, d. 7. febr. 1841 í Eyjum.
Ingveldur var ekkja á Kirkjubæ 1845.
Maki: Oddur Ögmundsson, f. um 1787, d. 1837.
Börn:
- Sesselja, f. 10. ágúst 1815.
- Sigurður, f. 24. júlí 1817.
- Magnús skipherra, f. 24. október 1822, fórst með þilskipinu Helgu í apríl 1867.
- Oddur, f. 12. október 1826, d. 17. október sama ár.
- Þuríður, f. 12. maí 1829, d. 31. október 1903, giftist Þórarni Hafliðasyni mormónatrúboða 15. ágúst 1850, en hann drukknaði 6. marz 1852. Hún giftist svo Jóni Árnasyni í Sjólyst og Þorlaugargerði.
- Ingveldur, f. 2. nóvember 1831, d. 22. september 1890. Hún fór til Vesturheims 1883.
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Sigfús M. Johnsen: Þórarinn Hafliðason fyrsti mormónatrúboðinn í Vestmannaeyjum. Blik, 1960.