Berg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. janúar 2016 kl. 14:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. janúar 2016 kl. 14:37 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Berg stóð upphaflega við Bárustíg 4. Húsið Berg byggðu Jónína Ástgeirsdóttir frá Litlabæ, fædd 4.júlí 1884, dáin 8.mars 1917, af barnsförum, barnlaus, og Sigurjón Jónsson frá Moldnúpi V-Eyjafjöllum, fæddur 15.apríl, 1884, drukknaði 9.október 1909. Þau bjuggu í því þegar 1908. Það var fært seint á sjötta áratugnum að Vesturvegi 23b.

Hilmar Sigurbjörnsson, Himmi Ninon, átti húsið frá því að það var flutt. Þar bjó hann ásamt konu sinni, Jónínu Ingibergsdóttur, og fjórum börnum; Sigurbirni, Kristjáni, Katrínu og Árna. Jónína seldi Viðari Sigurbjörnsyni frá Akureyri húsið árið 2005.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu



Heimildir

  • Bárustígur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.
  • Vesturvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.