Sigurður Reimarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 14:31 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2012 kl. 14:31 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Siggi Reim.

Sigurður Reimarsson er fæddur í Vestmannaeyjum 2. júní 1928 og uppalinn þar. Móðir Sigurðar var úr Reykjavík og faðir hans, Reimar Hjartarson, úr Landeyjum en fjölskyldan bjó á Hásteinsvegi 34 og síðar í Heiðartúni sem Reimar byggði. Þar rak hann einnig rörsteypugerð. Sigurður bjó lengi í húsinu Stakagerði-Vestra, en það var rifið á tíunda áratugnum. Sigurður býr nú á Hraunbúðum.

Sigurður, eða Siggi Reim eins og Eyjamenn kalla hann, starfaði um hríð hjá Lifrarsamlaginu en lengst af starfaði hann hjá Vestmannaeyjabæ við sorphirðu og síðar við hreinsun á götum bæjarins. Siggi Reim er hvers manns hugljúfi og spjallaði hann mikið við Eyjamenn á götunum á meðan hann hreinsaði þær. Nú fer hann í göngur og hefur ekkert látið af spjallinu.

Siggi Reim var brennukóngur á Þjóðhátíðinni í rúmlega hálfa öld.

Myndir