Sandur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. nóvember 2019 kl. 17:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. nóvember 2019 kl. 17:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Tók aftur breytingar Daniel (spjall), breytt til síðustu útgáfu Johanna)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Sandur stóð við Strandveg 63. Þar er nú hús Tryggingamiðstöðvarinnar.

Á Sandi bjó m.a. á síðustu öld Haraldur Sigurðsson, faðir Rúriks leikara. Haraldur var meðal annars þekktur að því að brugga afbragðsgóðan landa. Á Brimhólum bjó Hannes Sigurðsson bóndi og var m.a. formaður Búnaðarfélags Vestmannaeyja. Hann var í góðum tengslum við búnaðarsambönd á Norðurlöndum. Eitt sinn kom bréf frá Danmörku á pósthúsið í Eyjum og var utanáskriftin þessi:

Hr. landbruger H. Sigurðsson
Vestmannaeyjum

Bréfið var umsvifalaust borið út til Haraldar á Sandi.