Þórarinn Guðmundsson (Jaðri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2012 kl. 08:38 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2012 kl. 08:38 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þórarinn og Jónasína

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Þórarinn Guðmundsson


Þórarinn Guðmundsson frá Mandal, fæddist í Frydendal í Vestmannaeyjum 13. janúar 1893 og lést 30. maí 1975. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson og Málfríður Erlendsdóttir. Eiginkona Þórarins var Jónasína Runólfsdóttir.

Þórarinn var formaður í 30 ár, með Gústaf 1915-1916, Kristbjörgu 1917-1920, Úndínu 1921-1925, Skallagrím 1926-1927, Skíðblaðnir 1929-1933, Höfrung II 1934-1938, Happasæl 1939-1940 og Helga 1941-1944.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þórarinn:

Glöggur á veðra og græðisfar
greindur og snar í orðum
Þórarinn Helgu úr kvikum mar
hleður að efstu borðum.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagblað Vestmannaeyja. 1995.
  • Viðbót við heilmildir Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum