Magnús Jakobsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. ágúst 2024 kl. 14:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. ágúst 2024 kl. 14:31 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Magnús Jakobsson.

Magnús Þorbergur Jakobsson, Skuld, fæddist 16. september 1903 í Breiðuhlíð í Mýrdal og lést 7. febrúar 1970.

Árið 1926 fluttist hann til Vestmannaeyja og var háseti á Síðuhalli hjá Guðjóni Valdasyni og síðar vélamaður. Formennsku hóf hann á Skallagrími árið 1940 og var Magnús með hann í áratug. Eftir það hætti Magnús sjómennsku og fór að stunda vélasmíði.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Magnús:

Hér skal mætan Magnús Jakk
meður köppum telja.
Lengi sá með báru blakk
búinn er að dvelja.

Sjá einnig



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.