Sólvangur
Húsið Sólvangur við Kirkjuveg 29 var byggt árið 1920. Árið 2006 bjuggu í húsinu Styrmir Gíslason og Hólmfríður Ása Sigurpálsdóttir. Húsið var rifið þann 24. janúar 2012, vegna veggjatítluskemmda.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Magnús Jónsson skipstjóri og síðar ritstjóri
- Í kjallara bjuggu lengi Jósefína Sigurðardóttir og Halldóra Helgadóttir
- Ágúst Bjarnason og fjölskylda
- Einar Sigurfinnsson (eldri) og Ragnhildur Guðmundsdóttir frá 1956
- Guðmundur Einarsson og Sigfríð Valdimarsdóttir frá 1956
- Eyjólfur Konráðsson
- Kristinn Ævar Andersen
- Styrmir Gíslason og Hólmfríður Ása Sigurpálsdóttir
Heimildir
- Kirkjuvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.